Hlutfall háskólamenntaðra hæst í Vesturbænum og lægst á Suðurnesjum Stefán Árni Pálsson skrifar 18. mars 2015 09:59 Töluverður munur var á atvinnuþátttöku eftir svæðum í lok árs 2011. vísir/valli
Menntunarstig var afar misjafnt eftir talningarsvæðum samkvæmt manntalinu 31. desember 2011. Hlutfall háskólamenntaðra var hæst í Vesturbæ Reykjavíkur þar sem það fór yfir 50% af þeim sem voru 25 ára eða eldri en lægst á Suðurnesjum án Reykjanesbæjar, þar sem hlutfallið var 12,5% í aldurshópnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Á höfuðborgarsvæðinu var þetta hlutfall yfir 25% á öllum svæðum nema Efra og neðra Breiðholti þar sem 18,6% íbúa 25 ára og eldri höfðu lokið prófi úr háskóla. Töluverður munur var á atvinnuþátttöku eftir svæðum í lok árs 2011. Mest var hún í Vatnsenda í Kópavogi, rétt tæplega 80%, en minnst í Laugardalnum í Reykjavík þar sem hún fór undir 65%. Atvinnuleysi var mest í Njarðvíkum, Ásbrú og Höfnum, 14,2%, en minnst í Vestmannaeyjum, 1,9%. Hlutfall innflytjenda og afkomenda þeirra, þ.e. þeirra sem hvorugt foreldrið er fætt á Íslandi, né heldur afi og amma, var hæst í Efra og neðra Breiðholti þar sem 20% íbúa voru innflytjendur, en lægst var hlutfallið Ofan Brekku á Akureyri eða innan við 3%. Samkvæmt manntalinu 2011 voru 60 þéttbýlisstaðir á landinu með 200 íbúum eða fleiri. Alls bjuggu 93,8% landsmanna í þéttbýli hinn 31. desember 2011, flestir í Stór-Reykjavík þar sem voru 197.565 íbúar, eða 62,6% landsmanna. Út eru komin Hagtíðindi um meginniðurstöður manntalsins 2011 eftir svæðum. Í því má finna yfirlit yfir 42 talningarsvæði á landinu, en það er ný svæðaskipting sem sérstaklega var gerð til að gera betur grein fyrir niðurstöðum manntalsins. Í þeirri svæðaskiptingu er stærstu sveitarfélögunum skipt upp en minni sveitarfélög höfð saman um svæði. Að meðaltali eru um 7.500 manns á hverju talningarsvæði.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina Sjá meira