„Enginn man eftir því að þetta hafi gerst,“ segir Manny Alvarez, sem var myndatökumaður fyrir CBS og var í Buenos Aires á sama tíma. Þetta er haft eftir honum á vef CNN. Aðrir starfsmenn sjónvarpsstöðvarinnar sem CNN ræddi við kannast ekki við frásögn O‘Reilly.
Fox News og Bill O‘Reilly hafa ekki svarað fyrirspurn Mother Jones, en spurningar sem lagðar voru fyrir hann má sjá hér.
CNN hefur rætt við nokkra þáverandi starfsmenn CBS en enginn þeirra kannast við þau atvik sem O‘Reilly hefur lýst. Þá kannast þáverandi starfsmannastjóri CBS ekki við að nokkur starfsmaður þeirra hafi slasast í Buenos Aires.
Í fréttum af mótmælunum á þeim tíma kom hvergi fram að dauðsföll hafi orðið, en einhverjir slösuðust þó. Myndatökumaðurinn sem var með O‘Reilly vill ekki tjá sig um þetta atvik. CNN hefur þó eftir Miu Fabius, yfirmanni myndatökumannsins að hann hafi aldrei sagt frá því að hafa meiðst.

Bill O‘Reilly hefur hins vegar ekki viðurkennt að hafa sagt rangt til um aðstæður í Argentínu. Þess í stað segir hann vinstri sinnaða fjölmiðla vera í herferð gegn sér. Hann segist ætla að sanna mál sitt í þætti sínum á Fox í kvöld.