Innlent

Þótti ekki ástæða til að fara fram á gæsluvarðhald yfir sakborningum

Birgir Olgeirsson skrifar
Mönnunum var haldið í sólarhring á meðan frumrannsókn málanna fór fram.
Mönnunum var haldið í sólarhring á meðan frumrannsókn málanna fór fram. Vísir/Anton
Ekki voru forsendur fyrir því að úrskurða mennina tvo sem grunaðir eru um nauðgun í Hlíðarhverfinu í gæsluvarðhald, segir Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kynferðisafbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Sjá einnig: Nauðgunarmál í HR: Bæði atvikin að lokinni skólaskemmtun í miðbæ Reykjavíkur

Hefur þessi ákvörðun vakið hörð viðbrögð netverja og margir sótt hart að lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á Facebook-síðu hennar vegna málsins.

Kæra lögregla á höfuðborgarsvæðinu. Sem almennur borgari, sem er þess utan kvenkyns og þ.a.l. í stærri áhættuhóp fyrir...

Posted by Þórdís Elva Þorvaldsdóttir on Monday, November 9, 2015
Enn með stöðu sakborninga

Árni Þór segir mennina hafa verið í haldi lögreglu í sólarhring á meðan frumrannsókn málanna fór fram. Gerði lögreglan meðal annars húsleit í fjölbýlishúsi í Reykjavík á dögunum þar sem talið er að tvær árásir hafi í tveimur aðskildum kynferðisbrotamálum hafi átt sér stað.

Var mönnunum sleppt úr haldi þegar þau atriði sem voru rannsakanleg voru komin fram. Því var ekki hægt að fara fram á gæsluvarðhald út frá rannsóknarhagsmunum, að sögn Árna Þórs.

Sjá einnig: Lögregla gerði húsleit í íbúð í Hlíðunum

Var málið metið af fulltrúum ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við framvindu rannsóknarinnar og var það metið svo að ekki væri hægt að úrskurða sakborningana í gæsluvarðhald út frá rannsóknarhagsmunum eða almannahagsmunum.

Eru mennirnir þó enn með stöðu sakborninga.

Ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum tveimur.vísir/heiða
Heimild til gæsluvarðhalds ef brotið varðar meira en 10 ára fangelsisvist

Í 95. grein laga um meðferð sakamála kemur fram að sakborningur verði aðeins úrskurðaður í gæsluvarðhald ef rökstuddur grunur sé um að hann hafi gerst sekur um háttsemi sem fangelsisrefsing er lögð við. Auk þess verður að vera fyrir hendi eitthvert eftirtalinna skilyrða:

Ætla megi að sakborningur muni torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum eða hafa áhrif á samseka eða vitni.

Þá má einnig úrskurða sakborninga í gæsluvarðhald ef ætla megi að hann muni halda áfram brotum meðan máli hans er ekki lokið eða rökstuddur grunur leiki á að hann hafi rofið í verulegum atriðum skilyrði sem honum hafa verið sett í skilorðsbundnum dómi. Einnig má úrskurða sakborninga í gæsluvarðhald ef það er talið nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sakbornings eða hann sjálfan fyrir árásum eða áhrifum annarra manna.

Ef ekkert þessara atriði er uppfyllt má hins vegar úrskurða sakborninga í gæsluvarðhald ef grunur leikur á að hann hafi framið afbrot sem að lögum getur varðað 10 ára fangelsi, enda sé brotið þess eðlis að ætla megi varðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Nauðgunarbrot getur varðað allt að sextán ára fangelsi samkvæmt almennum hegningarlögum.

Sakborningar eru frjálsir ferða sinna nema þeir séu úrskurðaðir í farbann. Ekki var farið fram á farbann yfir sakborningum í málinu.


Tengdar fréttir

Meintur nauðgari sendur í leyfi

Starfsmaður hótelsins Reykjavík Marina, sem grunaður er um aðild að hrottalegri nauðgun á konu í félagi við annan mann, hefur verið sendur í leyfi frá fyrirtækinu.

Grunur um nauðgun á bekkjarskemmtun HR

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins rannsakar lögreglan kynferðisbrot sem sagt er hafa átt sér stað á bekkjarskemmtun nemenda HR. Nemandi er sagður hafa nauðgað tveimur samnemendum sínum. Skólinn hefur gripið til aðgerða.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×