Lýðræðisfylking Suu Kyi vann stórsigur í kosningum Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 14. nóvember 2015 07:00 Stuðningsmaður Lýðræðisfylkingarinnar stendur fyrir framan mynd af Aung San Suu Kyi. Fréttablaðið/EPA
Lýðræðisfylkingin, stjórnmálaflokkur Nóbelsverðlaunahafans Aung San Suu Kyi, hefur þegar tryggt sér tvö af hverjum þremur mögulegum þingsætum á þjóðþingi Búrma í kjölfar kosninga sem haldnar voru á sunnudag. Fréttastofa BBC greindi frá því í gær að þegar hefði verið tilkynnt um skipan áttatíu prósenta sæta á þinginu sem kosið var um. Sætin á þinginu eru alls 664 en samkvæmt lögum skipar herinn í fjórða hvert sæti. Fyrir kosningarnar, fyrstu opnu kosningar í ríkinu í 25 ár, var ljóst að Lýðræðisfylkingin þyrfti að fá tvo þriðju allra sæta á þinginu svo flokkurinn fengi einn að velja forseta ríkisins og binda enda á áratugalanga herforingjastjórn. Suu Kyi sagði við fjölmiðla eftir að úrslitin voru ljós að hún myndi þó sýna fullan samstarfsvilja og að ríkisstjórn Lýðræðisfylkingarinnar myndi taka tillit til annarra flokka sem og hersins. Þá hafa fráfarandi forseti, Thein Sein og höfuðsmenn hersins lýst því yfir að þeir muni una niðurstöðu kosninganna. Þrátt fyrir mikinn meirihluta Lýðræðisfylkingarinnar hefur herinn enn nógu mörg þingsæti til að geta beitt neitunarvaldi á allar stjórnarskrárbreytingar. Þar að auki getur Suu Kyi sjálf ekki sest í stól forseta þar sem hún á börn með erlendum maka.
Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Innlent Fleiri fréttir Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan Sjá meira