Stóðu ekki skil á virðisaukaskattsskýrslum og gert að greiða 75 milljónir sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 28. október 2015 10:05 Maðurinn játaði brot sín en konan neitaði sök. vísir/stefán
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í síðustu viku hjón í tíu og sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot árin 2011 til 2013. Þeim er gert að greiða rúmlega 75 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs og fá fjórar vikur til að standa skil á greiðslunum. Hjónin voru sökuð um að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum einkahlutafélags þeirra, Verks 10, á lögmætum tíma og fyrir að hafa ekki staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri einkahlutafélagsins innan lögboðins frests. Karlmaðurinn viðurkenndi að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök, en konan ekki. Hún var skráður framkvæmdastjóri, en hún sagðist engin afskipti hafa haft af rekstri félagsins, þar með skattskilum þess. Hún hafi aðeins verið skráð sem framkvæmdastjóri félagsins og stjórnarmaður að nafninu til og að rekstur félagsins hafi alfarið verið í höndum Ekki með „hreint nafn“ Þá sagði hún að sú ráðstöfun að skrá hana sem framkvæmdastjóra félagsins hafi átt að standa í skamman tíma en farist hafi fyrir að breyta því. Ástæða þess hafi verið sú að maður hennar hafi ekki verið með „hreint nafn“. Rekstrarerfiðleikar hefðu á endanum leitt til þess að ekki hafi verið staðið í skilum með greiðslu skatta. Eiginmaðurinn tók í einu og öllu undir lýsingar hennar, að því er segir í dómnum. Dómurinn taldi ekki ástæðu til að draga í efa framburð konunnar. Þó verði ekki litið fram hjá þeim skyldum sem að lögum hvíla á skráðum framkvæmdastjóra, sem ber skylda til að sjá til þess að nægt eftirlit sé haft með bókhaldi og meðferð fjármuna félags. Hún hafði ekki áður sætt refsingu og taldi dómurinn sex mánaða skilorðsbundið fangelsi því hæfileg refsing. Þá er konunni einnig gert að greiða 34.500.000 kr. Maðurinn var dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi og gert að greiða 40.900.000 kr.
Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Sjá meira