Árni segir rétt að hafa ekki vikið sæti Nadine Guðrún Yaghi skrifar 2. október 2015 09:00 Árni Sigfússon, stjórnarformaður ráðgjafanefndar Orkusjóðs. vísir/gva „
Ég vék ekki sæti en tel mig hafa unnið þetta hárrétt,“ segir Árni Sigfússon, stjórnarformaður ráðgjafanefndar Orkusjóðs. Nýlega veitti Orkusjóður Nýsköpunarmiðstöð Íslands styrk sem nam tæplega fimm milljónum króna. Fréttablaðið greindi frá því í gær að stjórnsýslukæra hefði borist atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu vegna tengsla Árna og Þorsteins Inga Sigfússonar, forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, sem styrkinn fékk. Þeir séu bræður. „Ef vinur eða venslamaður sækir um styrk skal nefndarmaður að sjálfsögðu víkja. En það var ekki í þessu tilviki. Þetta er sambærilegt við að rektor Háskóla Íslands væri þannig beintengdur við allar umsóknir deilda háskólans og þeir sem venslaðir væru honum, mættu ekki fjalla um neinar slíkar umsóknir á vegum skólans, þótt hann kæmi hvergi persónulega að þeim,“ segir Árni og bætir við að umsóknir Nýsköpunarmiðstöðvarinnar hafi hlotið hæstu einkunn utanaðkomandi sérfræðinga sem fengnir voru til að meta þær. Valdimar Össurarson, framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Valorku og einn umsækjenda í Orkusjóð, kærði málið til ráðuneytisins. Að sögn hans er ámælisvert að stofnunin geti yfirhöfuð sótt um styrki úr samkeppnissjóðum en henni sé að lögum ætlað að vera frumkvöðlum til ráðgjafar og meðal annars veita þeim aðstoð við styrkumsóknir í samkeppnissjóði. Stofnunin keppi þannig um styrki við skjólstæðinga sína. Í tilkynningu frá ráðuneytinu vegna málsins segir að það sé yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar að efla samkeppnissjóði. Rétt eins og fyrirtæki og einstaklingar, sæki hinar ýmsu rannsókna- og þróunarstofnanir ríkisins um styrki í sjóðina. Orkusjóður sé samkeppnissjóður og samkvæmt lögum séu engin takmörk á því hverjir megi sækja í sjóðinn, önnur en þau að Orkustofnun sé það óheimilt þar sem hún annist rekstur sjóðsins.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira