Hópuppsögn í Söngskóla Sigurðar Demetz: „Viljum forðast milljóna gjaldþrot í lok skólaárs“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. október 2015 14:42 Óperudeild Söngskóla Sigurðar Demetz setti upp óperuna Martha eftir Friedrich von Flotow í vor. Vísir/Valli
Öllum 28 kennurum í Söngskóla Sigurðar Demetz við Ármúla í Reykjavík hefur verið sagt upp störfum. Gunnar Guðbjörnsson, annar skólastjóra, segist í samtali við RÚV óttast að söngnám á Íslandi heyri sögunni til breytist ekki rekstrarumhverfi söngskóla hér á landi.Fréttablaðið hefur fjallað um fjárhagsvanda tónlistarskóla í Reykjavík undanfarna mánuði.Sumarið 2011 var gert samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um nokkuð hundruð milljón króna fjárframlag ríkissjóðs til tónlistarmenntunar á framhaldsstigi. „Fjárhæðin átti að ganga upp í kennslukostnað allra framhaldsstigsnemenda á landinu. Fjöldi nemenda hefur þó aukist og ekki var tekið tillit til launahækkana í kjarasamningum. Töluvert vantar því upp á að fjárhæðin dugi,“ sagði Þórunn Guðmundsdóttir, stjórnarmaður Samtaka tónlistarskóla í Reykjavík, í ágúst. Bætti hún við að uppsafnaður vandi væri orðinn mikill.Gunnar Guðbjörnsson segir skólann vera að forðast gjaldþrot.Visir/ValliSendu nemendum bréf Gunnar og Guðbjörg Sigurjónsdóttir, skólastjórar skólans, sendu nemendum við skólann bréf í morgun þar sem upplýst var að búið væri að segja upp öllum kennurunum 28 með þriggja mánaða uppsagnarfresti. Segir að ekki hafi verið ætlunin að íþyngja fleirum en kennurunum með svo alvarlegum hlut en þar sem fjölmiðlar væru komnir á snoðir um málið væri réttast að vera ekki að þagga niður svo alvarlegan hlut. „Enda teljum við að bæði Reykjavíkurborg og menntamálaráðuneytið hafi brugðist okkur í þessu erfiða máli.“Sjá einnig: Einn tónlistarskóli fái peningana Þau biðja nemendur um að halda ró sinni, halda áfram að mæta og stunda skólann enda sé ekki um neina endanleag ákvörðun að ræða varðandi lokun skólans. „Við erum hins vegar tilneydd til að horfast í augu við þá staðreynd að aðeins með því að skólinn fái aukið fjármagn til greiðslu kennslukostnaðar getum við haldið starfinu áfram á nýju ári.“ Skólastjórarnir gera frekar ráð fyrir því að fundin verði leið til að bjarga skólanum og öðrum skólum sem svipað er satt fyrir. „Það sem við viljum forðast er milljóna gjaldþrot í lok skólaárs.“
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira