Einn tónlistarskóli í Reykjavík fái peningana Svavar Hávarðsson skrifar 4. júní 2015 13:54 Fréttablaðið/Pjetur
Ráðgert er að veita allt fjármagn ríkisins sem ætlað er til framhaldsnáms í tónlist til eins tónlistarskóla í Reykjavík. Sveitarfélög munu þar með reka sína tónlistarskóla án fjárframlags frá ríkinu. Þetta kemur fram í greinargerð starfshóps sem 25 manna hópur tónlistarskólastjóra af öllu landinu undirritar. Þar eru þessar hugmyndir um breytingar á uppbyggingu tónlistarnáms á framhaldsstigi harðlega gagnrýndar og áhyggjur viðraðar af aðgengi nemenda og jafnrétti til náms. Unnið er að málinu í ráðuneytinu og var nýverið skipaður starfshópur um nýtt fyrirkomulag á stuðningi ríkisins við námið. Ekki var leitað til samtaka tónlistarskóla eða tónlistarkennara um aðkomu að nefndinni. Starfshópurinn hefur ekki enn komið saman.. Bréf vegna málsins hefur verið sent þingmönnum allra flokka, borgarfulltrúum, sveitarstjórnarmönnum og öðrum sem málið varðar. Árni Harðarson, skólastjóri Tónlistarskóla Kópavogs, annar þeirra sem undirritar greinargerðina, sýnist sem grunnhugmyndin snúist um að hverfa aftur um nokkur ár og aftengja samkomulag ríkisins og Sambands sveitarfélaga frá 2011 um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms. Samkvæmt núgildandi lögum eru tónlistarskólarnir á ábyrgð sveitarfélaganna en ríkið hefur lagt tæplega 250 til 300 milljónir í framhaldsnámið samkvæmt samkomulaginu í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Því sé ljóst að sveitarfélögin muni þar með reka sína tónlistarskóla án fjárframlags frá ríkinu, þótt engar mótaðar hugmyndir hafi hann séð. Í greinargerð skólastjórahópsins segir að ráðherra vilji í stað núverandi fyrirkomulags semja við eina sameinaða stofnun tveggja tónlistarskóla í Reykjavík; Tónlistarskólans í Reykjavík og Tónlistarskóla FÍH. „Það virðist vera hugmyndin að koma á legg framhaldsskóla í tónlist,“ segir Árni en veit ekki hverjum standi til boða skólavist þar. Nemendafjöldi skólanna tveggja var 239 á síðustu haustönn en á landsvísu ríflega 900. Nemendur á framhaldsstigi í hljóðfæraleik og einsöng í fyrrahaust voru rúmlega 900 – þar af 677 utan þessara tveggja sem stæðu að baki nýja skólanum verði hugmyndirnar að veruleika. Þær virðast hins vegar þegar nokkuð þroskaðar miðað við bréf sem Söngskóli Sigurðar Demetz fékk 2. mars frá ráðuneytinu. Þar segir að „af hálfu ráðuneytisins er ekki ráðgert að fjárhagslegum stuðningi verði haldið áfram með óbreyttum hætti og verið hefur frá haustmisseri 2011“.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira