Áfall að geta ekki gist hjá barninu á vökudeild Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 3. október 2015 18:45
Móðir stúlku sem var hætt komin í fæðingu segir það hafa verið áfall að hún og barnsfaðirinn hafi ekki getað gist hjá barninu á vökudeildinni. Hún gagnrýnir aðstöðuleysi á deildinni og telur brýnt að bæta þar úr. Þetta er hún Tinna en hún kom í heiminn 26. júlí síðastliðinn eftir fjörtíu vikna meðgöngu móður sinnar með nokkrum látum. Þegar Berglind Aðalsteinsdóttir, móðir hennar, kom á fæðingardeildina kom í ljós að barninu var farið að blæða út og var framkvæmdur bráðakeisari. „Hún hafði misst heilmikið blóð og var án lífsmarks fyrst eftir komu í heiminn en sem betur fer þá tók hún fljótt við sér eftir að hafa fengið viðeigandi meðferð og vökvagjöf og neyðarblóð en í framhaldinu þá er hún lögð inn á vökudeildina í svokallaða kælimeðferð og er haldið sofandi fyrstu sólarhringana,“ segir Berglind. Erfiðir sólahringar á tóku við hjá Berglindi og manni hennar meðan beðið var eftir því að það kæmi í ljós hvernig heilinn og önnur líffærakerfi hefði þolað áfallið.Tinna hafði misst heilmikið blóð og var án lífsmarks fyrst eftir komu í heiminnVísir„Það kom okkur verulega á óvart hversu þröngt er um starfsemina á vökudeildinni og lítið sem ekkert, lítil sem engin, aðstaða fyrir foreldra. Það var heilmikið áfall að komast að því að aðstaðan biði ekki upp á það að foreldrar gisti hjá börnum sínum á vökudeild,“ segir Berglind. Berglind gagnrýnir það aðstöðuleysi sem er á vökudeild. „Það er bara mjög erfitt að fara frá barninu sem er inniliggjandi á spítala,“ segir Berglind. Berglind er sérnámslæknir í Noregi og hefur kynnt sé vel aðstöðu á vökudeildum víðar um heim. Hún segir nýrri vökudeildir gera ráð fyrir því að foreldrar dvelji hjá börnum sínum alla sólarhringinn. „Það er stutt með rannsóknum sem að sýna það að það hafi jákvæð áhrif bæði á barnið og foreldrana og komi fram jafnvel í styttri legutíma, betri tengslamyndun og vissulega hefur það líka góð áhrif á brjóstagjöfina,“ segir Berglind Tinna hefur dafnað vel og bendir allt til að hún sé fullkomlega heilbrigð. Berglind segir að það hefði gert mikið fyrir þau hjónin að geta verið hjá henni allan sólarhringinn fyrstu dagana. Brýnt sé því að bæta úr aðstöðunni á deildinni sérstaklega í samhengi við fyrirhugaða byggingu nýs Landspítala. „Mér finnst grátlegt að vita til þess að það eigi að fara á stað með uppbyggingu á nýjum Landspítala án þess að það sé gert ráð fyrir nýrri vökudeild,“ segir Berglind.
Mest lesið Arnar Þór ýjar að stofnun nýs stjórnmálaflokks Innlent Netanyahu fastur milli steins og sleggju Erlent Harmar atvik þar sem konu var sagt að hún væri búin að kjósa Innlent Vítisvist á Unglingaheimili ríkisins Innlent Fylgjast grannt með hraunflæðinu Innlent Tveir skotnir til bana í Norrköping Erlent Fyrsta konan og gyðingurinn til að verða forseti Mexíkó Erlent Seinkun á tölum ekki að ástæðulausu Innlent Selenskí óskar Höllu Tómasdóttur til hamingju Innlent Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Innlent Fleiri fréttir Vítisvist á Unglingaheimili ríkisins Fylgjast grannt með hraunflæðinu Arnar Þór ýjar að stofnun nýs stjórnmálaflokks Selenskí óskar Höllu Tómasdóttur til hamingju Harmar atvik þar sem konu var sagt að hún væri búin að kjósa Notkun Íslendinga á ADHD-lyfjum þrefaldaðist á tíu árum Fínt að það séu ekki bara „kallaforsetar“ Seinkun á tölum ekki að ástæðulausu Nýr forseti, kjörsókn sú besta í 28 ár og mat kjósenda Óskar Höllu til hamingju: „Þú verður góður forseti“ Svona var ávarp nýkjörinnar Höllu Tómasdóttur Ríkisstjórnin á erfiða daga fyrir höndum Þrjár efstu með 75 prósent atkvæða Niðurstöður talningar: Kjörsókn með besta móti Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Neðstu sex fengu samanlagt rúm þrjú þúsund atkvæði Dauðþreyttur Jón eyddi átta milljónum króna Ávarpaði stuðningsmenn af svölunum Könnun Maskínu daginn fyrir kjördag staðfesti flugið á Höllu Tómasdóttur Halla Hrund með hjartað fullt af þakklæti Aukafréttatími Stöðvar 2 Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Fólk streymir í Bláa lónið á ný og sér eldgosið vel „Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“ Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Stöðugt hraunflæði til tveggja átta Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Kosningarnar gerðar upp Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Sjá meira