Meðferðarátak vegna lifrarbólgu C einsdæmi á heimsvísu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. október 2015 13:00 Sigurður Ólafsson, læknir á Landspítalanum. vísir/stefán
Sigurður Ólafsson, umsjónarlæknir lifrarlækninga á Landspítala, segir að það þekkist hvergi annars staðar í veröldinni að öllum þeim sem séu með lifrarbólgu C sé boðin viðlíka meðferð við sjúkdómnum og stefnt er að hér á landi á næstu þremur árum. Um einsdæmi er því að ræða í heiminum. „Það sem við þekkjum annars staðar frá er að meðferð með þessum lyfjum hefur verið takmörkuð við þá sjúklinga sem eru komnir með umtalsverðar lifrarskemmdir,“ segir Sigurður í samtali við Vísi. Áþekkt verkefni er hafið í Georgíu en Sigurður segir það í raun ekki sambærilegt við það átak sem farið verður í hér þar sem vandamálið sé mun stærra þar og inniviðir heilbrigðisþjónustu ekki jafn góðir og hér.Átak á borð við þetta ekki raunhæft fyrr en nú Meðferðarátakið hefur verið í undirbúningi í töluverðan tíma. „Hugmyndir um þessa nálgun, það er að segja svona meðferðarátak, hafa verið á sveimi í nokkur ár. Það hefur hins vegar ekki verið raunhæft þar til nú þar sem lyfin hafa haft svo miklar aukaverkanir í för með sér að það hefur ekki verið hægt að meðhöndla mjög breiðan hóp,“ segir Sigurður. Talið er að á milli 800 til 1000 manns séu með lifrarbólgu hér á landi og er stefnt að því að bjóða þeim öllum meðferðina, sjúklingum að kostnaðarlausu.Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra.vísir/pjeturMikill ávinningur til lengri tíma litið „Við viljum ná til sem flestra á fyrstu tveimur árunum og meðhöndla alla sjúklingana á þremur árum. Það mikilvægasta í þessu er auðvitað sá ávinningur sem er í þessu fyrir hvern og einn sjúkling sem er með lifrarbólgu C. Með lyfjameðferð sem eyðir veirunni batna lífsgæðin og hún kemur í veg fyrir myndun skorpulifrar og lifrarfrumukrabbameins.“ Sigurður segir að til lengri tíma sé ávinningur mikill enda er vonast til þess að meðferðarátakið leiði til færri tilfella af skorpulifur, lifrarkrabbameini og lifrarígræðslu. Lyfjafyrirtækið Gilead leggur lyfið til en læknar á Landspítalanum munu rannsaka virkni lyfsins. Þá samþykkti ríkisstjórnin á fundi sínum í gær að leggja 150 milljónir króna árlega næstu þrjú ár til meðferðarátaksins svo standi megi straum af blóðrannsóknum og annarri þjónustu sem tengist meðferðinni.Meiriháttar forvarnar-og lýðheilsuverkefni Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, segir átakið gott dæmi um það hvað íslenskt heilbrigðiskerfi og starfsmenn þess eru megnugir og hverju hægt er að koma til leiðar ef hugsað er út fyrir boxið. „Hér er um meiriháttar forvarnar- og lýðheilsuverkefni að ræða enda felst í þessu mikill ábati fyrir þjóðfélagið og auðvitað þá 800 til 1000 sjúklinga sem nú glíma við lifrarbólgu C,“ segir Kristján. Þá segir hann átakið gott dæmi samstarf þar sem báðir aðilar hafa mikinn hag af. „Það er hagur Íslendinga að þessir sjúklingar losni við sjúkdóminn og við getum lækkað tíðni hans í framtíðinni, og jafnvel útrýmt honum. Svo er það hagur Landspítalans að geta nýtt sér rannsóknarniðurstöður vegna verkefnisins.“
Tengdar fréttir Sjúklingar með lifrarbólgu C fá lyfjameðferð sem læknað getur sjúkdóminn Einstaklingum sem smitaðir eru af lifrarbólgu C og njóta sjúkratrygginga á Íslandi mun bjóðast meðferð með nýjum lyfjum sem geta læknað sjúkdóminn í allt að 95 til 100 prósent tilvika. 7. október 2015 10:10 „Flottustu fréttir sem ég hef fengið lengi“ Fanney Björk Ásbjörnsdóttir sem barist hefur ötullega fyrir því að fá lífsnauðsynleg lyf við lifrarbólgu C var klökk þegar Vísir náði tali af henni í morgun. 7. október 2015 11:02 Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira
Sjúklingar með lifrarbólgu C fá lyfjameðferð sem læknað getur sjúkdóminn Einstaklingum sem smitaðir eru af lifrarbólgu C og njóta sjúkratrygginga á Íslandi mun bjóðast meðferð með nýjum lyfjum sem geta læknað sjúkdóminn í allt að 95 til 100 prósent tilvika. 7. október 2015 10:10
„Flottustu fréttir sem ég hef fengið lengi“ Fanney Björk Ásbjörnsdóttir sem barist hefur ötullega fyrir því að fá lífsnauðsynleg lyf við lifrarbólgu C var klökk þegar Vísir náði tali af henni í morgun. 7. október 2015 11:02