Hlutur bensínbíla aldrei verið minni Óli Kristján Ármannsson skrifar 30. september 2015 06:00 Tengiltvinnbílum (e. Plug-in-Hybrid) er spáð vaxandi vinsældum á Norðurlöndum, enda nýtast þeir líka þar sem lengra er á milli hleðslustöðva. Hér má sjá kynningu á slíkum bíl frá Volvo á Alþjóðlegu bílasýningunni í Leipzig í Þýskalandi í fyrra. vísir/epa
Vistvænir fólksbílar eru í stórsókn að því er fram kemur í gögnum Samgöngustofu um bíla og eldsneytisgjafa þeirra. Frá árslokum 2010 hefur bílum sem nýta aðra orkugjafa en bensín eða dísil eingöngu fjölgað um 312,5 prósent, á meðan hinum fjölgar um 8,5 prósent. Bílar sem ganga fyrir rafmagni í einhverri mynd, annað hvort einu saman eða í tvinn- eða tengiltvinnbílum, eru flestir þegar kemur að svokölluðum vistvænni bílum (2.195 í lok þessa mánaðar), en þar á eftir koma bílar sem nota metan í einhverri mynd (644). Þá kemur fram að um leið og fólksbílafloti landsmanna hefur stækkað ört síðustu ár hefur hlutur bíla sem eingöngu ganga fyrir bensíni aldrei verið minni, eða 73,2 prósent. Hlutur dísilbíla hefur hins vegar vaxið stöðugt frá aldamótum, eða um sem nemur 50 prósentum á hverjum fimm árum. Núna eru dísilbílar 25,5 prósent fólksbíla landsins. Restin skiptist á milli bíla sem nota rafmagn (tæpt prósent) og svo þeirra sem nota metan (um þriðjungur úr prósenti). Aðrir orkugjafar mælast í brotabrotum úr prósenti. Fólksbílum hefur hins vegar fjölgað um tæp 40 prósent frá árinu 2000 og eru nú 225.187 á götum landsins.Özur Lárusson framkvæmdastjóri BílgreinasambandsinsÖzur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, bendir á að fólksfjölgun skýri hluta aukningarinnar, en á vef Hagstofunnar má sjá að frá 2000 hefur landsmönnum fjölgað um sem nemur 18 prósentum. „Stærsti parturinn er svo fjölgun ferðamanna, en sprengja hefur orðið í fjölda bílaleigubíla,“ bætir hann við. Skarður hlutur bensínbíla og aukning í notkun dísilbíla segir Özur svo skýrast af opinberri stefnumörkun, bæði hér og í Evrópu. „Stjórnvöld fóru í meiri mæli að beina fólki á dísilbílana á þeim formerkjum að þeir væru umhverfisvænni en bensínbílar.“ Í framhaldinu hafi bílaframleiðendur lagt áherslu á að ná niður eyðslu dísilbíla og gengið mjög vel. Opinber neyslustýring og sífellt sparneytnari dísilvélar hafi svo ýtt undir aukinn hlut þessara bíla. Núna hafi hins vegar komið á daginn að dísilvélar séu ekki jafnumhverfisvænar og talið hafi verið. „Burtséð frá þessu Volkswagen hneyksli þá hefur nýverið komið upp að sótagnir, eða NOx-efni, sem koma frá þessum vélum séu talin skaðlegri en efni sem koma frá bensínvélum.“ Framleiðendur hafi þó síðustu ár líka náð miklum árangri í að minnka þessa sótagnamengun. „En á meðan stjórnvöld og bílaframleiðendur hafa ýtt dísilvélum að fólki hefur bensínvélin setið svolítið á hakanum. Hún á þess vegna fullt inni og menn eru í auknum mæli að snúa sér að þróun á henni, að ná niður eyðslu og gera hana hagkvæmari.“ Nú þegar séu komnar fram bensínvélar sem séu umhverfisvænar og eyði sáralitlu. „Það gæti því orðið einhver breyting á þessum hlutföllum aftur.“ Hvað varðar fjölgun rafmagnsbíla segir Özur margt þurfa að gera í uppbyggingu innviða, svo sem hleðslustöðva, eigi að rafbílavæða þjóðina. Fjölgun þeirra allra síðustu ár eigi hins vegar rót sína í því að þeir séu án virðisaukaskatts og vörugjalda. Slík niðurfelling gjalda kunni að vera leið til að flýta fyrir þróun þar sem hlutur rafbíla verður enn stærri. Özur bendir þó á að á nýafstöðnum fundi bílgreinasambanda á Norðurlöndum hafi þessi mál verið rædd og komið fram að Norðmenn standi nú frammi fyrir endurskipulagningu þar sem afnema á miklar ívilnanir sem rafbílaeigendur hafa notið. „Þeir og aðrir á Norðurlöndum spá því að framtíðin liggi í þessum Plugin-Hybrid-bílum.“ Það eru blendingsbílar þar sem keyra má ákveðna vegalengd á rafmagninu eingöngu, en svo taki annað hvort bensín eða dísil við. „Þeirra spá er að breytingin verði í þessa veru á kostnað hreinna rafmagnsbíla.“
Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Innlent Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Innlent Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Innlent Fleiri fréttir Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Sjá meira