Vilja að Ólafur Ragnar komi til bjargar Ali al-Nimr Jakob Bjarnar skrifar 30. september 2015 11:28 Hrafn skorar á forseta Íslands að beita sér í máli Ali al-Nimr og nota sín sambönd í Sádi-Arabíu.
Hrafn Jökulsson rithöfundur hefur sett af stað undirskriftasöfnun á netinu, þar sem skorað er á forseta Íslands að beita sér í máli Ali al-Nimr. Undirskriftir hrannast inn og eru þegar komnar uppí fimm hundruð, nú skömmu eftir að söfnunin hófst. Eins og segir á vefsíðunni var Ali al-Nimr var 17 ára þegar hann var handtekinn í Sádi Arabíu 2012 fyrir að mótmæla kúgun stjórnvalda. Hann hefur verið dæmdur til dauða og verður hálshöggvinn og krossfestur. „Við undirrituð mótmælum þessari svívirðingu og endurteknum mannréttindabrotum Sádi Arabíu. Sem forseti Íslands hefur þú, Ólafur Ragnar Grímsson, einstakan aðgang að ráðamönnum Sádi Arabíu. Við felum þér að koma á framfæri andstyggð okkar og hryggð vegna þessa ömurlega athæfis konungsstjórnar Sáda, og biðja unga manninum griða.“Vongóður um að Ólafur Ragnar svari kallinu Hrafn segist, í samtali við Vísi, vongóður um að Ólafur Ragnar svari kallinu. „Að sjálfsögðu. Allir réttsýnir menn hljóta að bregðast við svo hryllilegum fréttum. Margir ráðamenn hafa þegar beðið unga manninum griða. Ólafur Ragnar er sem þjóðhöfðingi í aðstöðu til að biðla til konungs Sádí-Arabíu, sem á lokaorðið um hvort Ali verður hálshöggvinn og krossfestur.“ Hrafn minnir á að „glæpur“ unga mannsins er sá að hafa krafist lýðræðis, með síma að vopni. En, hvað er það nákvæmlega sem þú vilt að Ólafur Ragnar geri? „Hann á augljóslega að setja sig í samband við Salman konung Sádí-Arabíu, koma á framfæri sjónarmiðum Íslendinga í mannréttindamálum, og biðja unga manninum griða.“Hakkarar herja á vefsíður í Sádi-Arabíu Málið hefur vakið heimsathygli og er Hrafn ekki einn um að láta að sér kveða. Hér er til að mynda fjallað um aðkomu hakkara sem berjast fyrir lífi Ali, með árásum á opinberar vefsíður í Sádi-Arabíu. Hökkurum tókst að leggja undir sig síðurnar í nokkrar klukkustundir og náðu meðal annars yfirráðum á síðu dómsmálaráðuneytisins. Hópurinn segir að aðgerðir til þessa séu aðeins lágvært forspil að þeim ósköpum sem dynja yfir, ef Ali verður líflátinn. Hrafn bendir á að í sumar var sádi-arabískum leyniskjölum lekið, þar sem greint var frá samskiptum forseta Íslands og sendiherra Sádi-Arabíu. „Ólafur Ragnar Grímsson forseti er sagður hafa hrósað Sádi-Arabíu og farið fram á nánara samband þjóðanna,“ sagði í frétt Stundarinnar.
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Fleiri fréttir Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Sjá meira