Hundruð mótmæla skipulagstillögu Hafnarfjarðarbæjar Sveinn Arnarsson skrifar 21. september 2015 07:00 Mikið jarðrask hefur átt sér stað á lóðinni við Stekkjarberg 9. Umhverfisstofnun bendir á að hraunmyndanir og mýrar hafi verið friðlýstar 2009. vísir/valli
Umdeild deiliskipulagstillaga um breytingu á einbýlishúsalóð við Stekkjarberg í Hafnarfirði var send aftur til skipulagsnefndar bæjarins vegna formgalla. Skipulagsnefnd hafði áður samþykkt að láta byggja 13 íbúðir á einni einbýlishúsalóð á rótgrónum stað í hverfinu. Einbýlishúsalóðin stendur við friðlýstan fólkvang og hafa jarðvegsframkvæmdir á lóðinni skaðað friðlýsta svæðið að mati lögfræðings nágranna. Umhverfisstofnun og nágrannar hafa lagst hart gegn breytingunni á einni lóð umfram aðra á svæðinu.Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður íbúanna beggja vegna lóðarinnar.Einbýlishúsalóðin er í eigu Ágústs Más Ármanns, fyrrverandi stjórnarmanns í BYR Sparisjóði. Hann keypti lóðina af syni sínum, fjárfestinum Magnúsi Ármann, sem hafði í hyggju að byggja sér eitt þúsund fermetra einbýlishús á lóðinni stóru fyrir um tíu árum. Ágúst Már lét arkitekta teikna fyrir sig breytt skipulag á lóðinni, tvær byggingar með um 13 íbúðum. Tillagan gengur út á tólfföldun á nýtingarhlutfalli lóðarinnar frá því sem nú er. Við þetta sættu nágrannar sig ekki og furðuðu sig á því að skipulagsnefnd skyldi fara með málið áfram og samþykkja það fyrir bæjarstjórn. Á annað hundrað bæjarbúa skrifuðu undir mótmæli gegn fyrirhugaðri breytingu sem myndi þýða stórfelldar breytingar á svæðinu. Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður íbúanna beggja vegna lóðarinnar, segir málið lykta af gamaldags spillingu. Þarna sé um friðlýstan fólkvang að ræða og þessi gerningur sé til þess fallinn að eyðileggja það svæði með öllu. „Umhverfisstofnun hefur gefið það út að það þyrfti að skoða mögulega nýbyggingu á svæðinu mun betur.Adda María Jóhannsdóttir, bæjarfulltrúi.Einnig finnst umbjóðendum mínum, einbýlishúsaeigendum við götuna, það skjóta skökku við að aðeins ein lóð sé tekin fyrir og deiliskipulögð nákvæmlega eftir höfði eiganda lóðarinnar. Verið er að fórna hagsmunum almennings fyrir einstaklingshagsmuni, algjörlega að óþörfu,“ segir Einar Gautur. Ljóst má vera að söluandvirði þrettán nýrra íbúða á þessu svæði hleypur samanlagt á mörg hundruð milljónum króna. Adda María Jóhannsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, telur eðlilegt að skoða málið í víðara samhengi áður en farið er í að skipuleggja eina lóð. „Lóðin liggur við friðlýstan fólkvang á svæðinu og á meðan hópur er að störfum innan bæjarfélagsins um þéttingu byggðar er skrítið að þessi deiliskipulagstillaga sé keyrð í gegn,“ segir Adda María.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Fleiri fréttir Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Sjá meira