Tónleikum U2 frestað: „Gríðarlega margir sem grétu fyrir utan höllina“ Atli Ísleifsson skrifar 20. september 2015 22:01 Bjarni Árnason segist vonast til að geta breytt plönum sínum þannig að hann komist á tónleika sveitarinnar sem haldnir verða á þriðjudag. Vísir/Getty „
Það eru náttúrulega gríðarlega margir sem voru að koma annars staðar frá – frá útlöndum eða annars staðar í landinu – sem grétu fyrir utan höllina, vitandi það að þeir verða ekki hérna á þriðjudaginn,“ segir í Bjarni Árnason, læknir í Stokkhólmi, sem hugðist fara á tónleika írsku sveitarinnar U2 sem áttu að fara fram í Globen í kvöld. Tónleikunum var frestað fram á þriðjudag í kjölfar þess að höllin var rýmd af lögreglu af öryggisástæðum. Bjarni segir að hann og hans föruneyti hafi beðið fyrir utan Globen í fjóra klukkutíma fyrir tónleikana. „Í upphafi var okkur sagt að það væri einhver vandræði með miðakerfið og ekki væri hægt að skanna miðana. Það voru örugglega fjögur, fimm þúsund manns sem biðu þarna í röð fyrir utan höllina. Það virtist enginn hafa hugmynd um hvað væri að gerast.“ Sænskir fjölmiðlar hafa greint frá því að lögregla hafi leitað ungs manns sem átti að hafa komist inn í höllina með skotvopn. „Það hefur þó ekki fengist staðfest. Svo hefur einhvers staðar heyrst að það hafi komið sprengjuhótun,“ segir Bjarni. Bjarni segir að milli fjörutíu og fimmtíu manna hópur Íslendinga hafi verið mættur á staðinn til að sjá sveitina troða upp. „Margir þeirra munu missa af tónleikunum á þriðjudaginn. Við búum reyndar hérna í Stokkhólmi og við ætlum að reyna að komast. Ég er reyndar með önnur plön en vonandi verður hægt að breyta þeim. Ég veit ekki alveg hvernig þetta verður.“Ertu svekktur?„Jú, ég er afskaplega svekktur. Þetta er stór viðburður og eitthvað sem maður er búinn að bíða eftir frá því að maður var táningur. Ég hef aldrei séð U2 áður á tónleikum og auðvitað er maður svekktur yfir að hafa ekki komist á tónleikana. Eins og ég segi þá ætla ég að reyna að breyta mínum plönum og komast á þriðjudaginn, en það eru ekki allir sem geta gert það.“
Tengdar fréttir Tónleikum U2 í Stokkhólmi frestað af öryggisástæðum Mikil ringulreið skapaðist fyrir utan Globen þar sem tónleikarnir áttu að fara fram í kvöld. 20. september 2015 20:52 Mest lesið Sigríður Björk og Jón Karl til Bessastaða Innlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent „Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Innlent Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Innlent Setið um fjölskyldur félagsráðgjafa og börn þeirra áreitt Innlent Segist hafa rætt tvisvar við prinsinn í gini ljónsins Innlent Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Innlent Einn læknir sinnir þremur stjórnunarstöðum Innlent Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnarfirði Innlent „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent Fleiri fréttir Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Sjá meira
Tónleikum U2 í Stokkhólmi frestað af öryggisástæðum Mikil ringulreið skapaðist fyrir utan Globen þar sem tónleikarnir áttu að fara fram í kvöld. 20. september 2015 20:52