Fjórðungur kvenkyns nema orðið fyrir ofbeldi Samúel Karl Ólason skrifar 22. september 2015 14:52 Samkvæmt könnuninni voru einungis 28 prósent málanna tilkynnt til lögreglu eða annarra aðila. Vísir/Getty
Rúmlega 23 prósent kvenkyns háskólanema í Bandaríkjunum segjast hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi eins og nauðgunum, þukli eða óumbeiðnum kossum. Þetta kemur fram í einni umfangsmestu könnun af þessu tagi sem framkvæmd hefur verið í Bandaríkjunum. Um 5,4 prósent karlkyns nemenda hafa sömu sögu að segja.Samtök háskóla í Bandaríkjunum framkvæmdu könnunina í apríl og maí á þessu ári. Samtökin taka þó fram að líklegra sé að þeir sem hafi orðið fyrir ofbeldi hafi svarað könnuninni. Könnunin var framkvæmd í 26 háskólum og var svarhlutfallið um tuttugu prósent. Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, sagði í fyrra að kynferðislegt ofbeldi í Háskólum sé faraldur þar í landi og setti Hvíta húsið af stað starfshóp sem á að reyna að takast á við vandamálið. Samkvæmt Reuters fréttaveitunni var sérstök lögreglusveit stofnuð í New York í síðasta mánuði. Starfsmönnum hennar er ætlað að eltast sérstaklega við brotamenn í háskólum. Menntamálaráðuneyti Bandaríkjanna rannsakar nú fjölda háskóla í New York og hvort að lög varðandi hvernig taka eigi á ásökunum um kynferðislegt ofbeldi, hafi verið brotin þar. Samkvæmt könnuninni voru einungis 28 prósent málanna tilkynnt til lögreglu eða annarra aðila. Flestir töldu atvikin ekki nægilega alvarleg. Aðrir sögðust hafa skammað sín eða þau trúðu ekki að málið yrði tekið alvarlega. Langflestir sögðust þó trúa því að starfsmenn háskóla þeirra hefðu tekið ásökunum um kynferðislegt ofbeldi alvarlega. Því lengur sem nemendur hafa verið skóla, þá minnka líkurnar á því að þau verði fyrir kynferðislegu ofbeldi, samkvæmt könnuninni. Þá kom áfengi eða eiturlyf við sögu í töluverðum fjölda atvika.
Mest lesið Sigríður Björk og Jón Karl til Bessastaða Innlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent „Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Innlent Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Innlent Setið um fjölskyldur félagsráðgjafa og börn þeirra áreitt Innlent Segist hafa rætt tvisvar við prinsinn í gini ljónsins Innlent Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Innlent Einn læknir sinnir þremur stjórnunarstöðum Innlent Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnarfirði Innlent „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent Fleiri fréttir Íranski byltingarvörðinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Sjá meira