Barnungir gerendur og þolendur á fundum Snærós Sindradóttir skrifar 23. september 2015 07:00 Börn sem beita önnur börn kynferðisofbeldi eru oft vinir, skólafélagar eða fjölskyldumeðlimir. Tengslin eru því nærri óumflýjanleg. NordicPhotos/AFP
Sáttafundir fara fram á milli barna sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og þeirra sem frömdu ofbeldið, ef þeir eru líka undir lögaldri. Þetta er gert sem hluti af meðferð beggja einstaklinga í kjölfar ofbeldisins. Sálfræðimeðferð þolenda er í höndum Barnahúss en meðferð þeirra barna sem brjóta af sér er leidd af teymi sem stýrt er af Ólafi Erni Bragasyni sálfræðingi. Tugir mála koma inn á borð Barnahúss á hverju ári þar sem börn brjóta kynferðislega gegn öðrum börnum. „Ef við setjum þetta upp sem þolanda og geranda þá eru ýmsar spurningar sem sækja á þann sem verður fyrir brotinu. Af hverju gerðir þú þetta? Af hverju ég? Hvað varstu að hugsa? Ætlarðu að gera eitthvað svona aftur?“ segir Ólafur. Hann segir börn sem brjóta af sér oft eiga erfitt með að gera sér grein fyrir afleiðingum brotsins. „Ef þolendur og gerendur eru að hittast eða umgangast, segjum að þeir séu í sama skóla eða fjölskyldu, þá eru þeir sem verða fyrir brotinu snillingar í að fela líðan sína fyrir fólki. Maður getur sett upp ákveðinn front þótt manni líði mjög illa. Þess vegna gengur oft mjög illa fyrir gerendur að átta sig á afleiðingum gjörða sinna.“Ólafur Örn BragasonÓlafur segir að fundi bara fara fram á forsendum þolenda. „Þetta hefur gengið mjög vel. Starfsmaður Barnahúss er búinn að meta þetta og telur ekki skaðlegt fyrir barnið. Við undirbúum svo þessar almennu spurningar og líka ef það brennur eitthvað sérstakt á brotaþola. Þetta geta verið mjög erfiðir fundir. Hins vegar eru þeir til þess fallnir að fólki líður betur eftir á.“ Hann segir viljann þurfa að vera til staðar hjá öllum sem koma að málinu. Oft séu börnin í sömu fjölskyldu og þá myndist pressa um að samskipti haldi áfram. „Það er ekki hægt að afsaka hegðunina. Við erum að reyna að læra af henni og sjá til þess að þetta gerist ekki aftur en jafnframt reyna að virða það að þarna eru sambönd fólks sem vill viðhalda þeim. En í sumum tilfellum er þetta bara ekki hægt.“Guðrún JónsdóttirGuðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir hluta þeirra sem leita aðstoðar hjá þar hafa mikla þörf til að mæta ofbeldismanni sínum og spyrja spurninga. Ákveðin friðþæging sé fólgin í því að mæta geranda sínum í þeim tilfellum sem hann viðurkenni brotið. „Spurning um fyrirgefningu er ein af þessum spurningum sem margir engjast með. Annaðhvort hefur fólk þörf til að fyrirgefa eða getur ekki fyrirgefið og er með samviskubit yfir því. En það er ekkert eitt rétt í þessu. Þú þarft ekki að fyrirgefa frekar en þú vilt.“ „Það væri stórhættulegt að gefa einhverjar reglur út um hver niðurstaðan ætti að vera,“ segir Guðrún.
Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira