Konur með háskólapróf með þrisvar sinnum hærri laun en ómenntaðar konur Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. september 2015 23:56 Vísindamennirnir sem unnu að rannsókninni segja niðurstöðurnar jafnframt benda til þess að launamunur kynjanna sé minni en opinberar tölur bendi til. vísir/epa
Viðamikil rannsókn sem gerð var í Bretlandi á launum þeirra sem hafa háskólamenntun og þeirra sem ekki hafa lokið háskólaprófi sýnir að 10 árum eftir útskrift eru konur sem hafa háskólamenntun með þrisvar sinnum hærri laun en kynsystur sínar sem ekki hafa lokið prófi. Frá þessu er greint á vef Guardian. Um er að ræða stærstu rannsókn sem gerð hefur verið í Bretlandi á því hvaða áhrif háskólamenntun hefur á laun fólks. Rannsóknin var gerð af vísindamönnum við Cambridge og Harvard auk þess sem Rannsóknarstofnun um ríkisfjármál í Bretlandi kom að henni. Ekki er jafnmikill munur á launum karla ef litið er til þess hvaða menntun þeir hafa. Laun karla sem hafa háskólagráðu voru tvisvar sinnum hærri en þeirra sem ekki hafa lokið háskólaprófi. Skattaskýrslur og yfirlit námslána 260 þúsund einstaklinga sem voru í háskólanámi á árunum 1998 til 2011 voru greind í rannsókninni. Litið var á tekjur þátttakenda á skattaárinu 2011-2012. Vísindamennirnir sem unnu að rannsókninni segja niðurstöðurnar jafnframt benda til þess að launamunur kynjanna sé minni en opinberar tölur gefi til kynna. Launamunur háskólamenntaðra kvenna og karla 10 árum eftir útskrift er 23 prósent samkvæmt rannsókninni en opinberar tölur í Bretlandi benda til þess að launamunurinn sé 33 prósent.
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Erlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Erlent Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Erlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Fleiri fréttir Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Sjá meira