Jeppi í ljósum logum á Bústaðavegi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. september 2015 09:56 Aron ók bílnum upp á gangstétt og stóðu ljósi logar undan bílnum. „
Það halda allir að þetta sé tekið á setti því ég er leikmyndahönnuður,“ segir Aron Bergmann Magnússon sem lenti í óvæntu atviki sem reyndist sem betur fer ekki alvarlegt í Reykjavík á níunda tímanum í gærkvöldi. Aron var á leiðinni með Nizzan Terrano jeppann sinn á verkstæði og ók vinur hans bíl í humátt á eftir honum til að geta skutlað honum. Þeir félagar voru í nágrenni gatnamóta Bústaðavegar og Grensásvegar þegar eldur kviknar í jeppanum. „Hann byrjar að flauta fyrir aftan mig og þá áttaði ég mig á því hvað var í gangi,“ segir Aron sem stöðvaði bílinn um leið og stökk út. Hljóp hann sem leið lá í næstu blokk, hringdi á allar bjöllur þar til eldri maður útvegaði honum slökkvitæki. Í kjölfarið mætti lögregla og slökkvilið á staðinn og gekk nokkuð greiðlega að slökkva eldinn. Eldsupptökin voru við púströrið þar sem Aron segir drasl hafa safnast saman. Svo virðist sem um ofhitnun hafi verið að ræða en leiðinlegur gangur hafði verið í bílnum sem var ástæða þess að bíllinn var á leiðinni á verkstæði.Aron á vettvangi í gærkvöldi með slökkvitækið sem eldri maður í næstu blokk útvegaði honum.Aðspurður hvort hann hafi ekki verið skelkaður þegar eldurinn kom upp segir Aron „samt ekki“. Þetta hafi þó verið mikil upplifun. „Mér brá að sjá eld undir bílnum og hugsaði hvort hann væri að fara,“ segir Aron nokkuð yfirvegaður yfir öllu saman. Að slökkvistarfi loknu var bíllinn svo dreginn á verkstæði. Aron upplýsir að vinur hans, Bjarni Þór Sigurbjörnsson sem betur er þekktur sem Bjarni Massi, hafi nefnt að þetta væri einn hlutur sem væri hægt að stroka útaf listanum - „búið að kvikna í bílnum“. Annars hafi þetta verið ágætt ævintýri á fimmtudagskvöldi. Eldri maðurinn sem útvegaði Aroni slökkvitæki fær hlýjar kveðjur frá leikmyndahönnuðinum og sömuleiðis lögregla og slökkvilið fyrir vel unnin störf. Aðspurður hvernig hann ætli að komast á milli á meðan bíllinn er á verkstæði segir Aron: „Það er bara hjólið. Það þýðir ekkert annað.“
Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Fleiri fréttir Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Sjá meira