Ráðherra heimilar að flytja inn sæði og fósturvísa holdanauta Atli Ísleifsson skrifar 25. september 2015 12:52 Landsamband kúabænda hefur þrýst mjög á að innflutningurinn verði heimilaður. Vísir/Stefán
Sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð sem heimilar innflutning á erfðaefni nautgripa. Samkvæmt reglugerðinni verður heimilt að flytja inn sæði og fósturvísa holdanauta.Í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu kemur fram að tilgangurinn sé að efla innlenda framleiðslu á nautakjöti, en Landsamband kúabænda hefur þrýst mjög á að innflutningurinn verði heimilaður. „Innflutningur erfðaefnis og eldi á nautgripum, sem af því vaxa, verður háð ströngum skilyrðum og mun Matvælastofnun fylgjast með því að þeim verði framfylgt. Eingöngu má nota erfðaefnið á sérstökum einangrunarstöðvum sem uppfylla skilyrði reglugerðarinnar. Gangi áætlanir Landssambands kúabænda eftir má gera ráð fyrir að fyrstu gripirnir sem vaxa af innfluttu erfðaefni muni fæðast næsta vor. Eftir það verða að líða 9 mánuðir áður en heimilt verður að flytja gripina af einangrunarstöð. Framleiðsla á nautakjöti innanlands hefur undanfarin ár ekki náð að anna eftirspurn og nam innflutningur á nautakjöti rúmum 1.000 tonnum í fyrra. Stefnir í að meira þurfi að flytja inn til að mæta sífellt meiri eftirspurn. Ekki síst vegna fjölgunar erlendra ferðamanna,“ segir í tilkynningunni. Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra segir það ánægjulegt og í raun forsenda fyrir aukinni framleiðslu á nautakjöti hér á landi, að fá nýtt erfðaefni. „Spurn eftir nautakjöti hefur aukist stórlega á undanförnum árum og ákvörðunin er í samræmi við stjórnarsáttmálann þar sem segir að ríkisstjórnin muni gera íslensum landbúnaði kleift að nýta þau sóknartækifæri sem greinin standi frammi fyrir. Aukin framleiðsla á nautakjöti er svo sannarlega eitt þeirra tækifæra.“
Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Fleiri fréttir Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Sjá meira