„Heimsins stærsta kennslustund“ haldin í Flataskóla Atli Ísleifsson skrifar 28. september 2015 13:06 Ævar vísindamaður kynnti myndbandið í Flataskóla í morgun. Mynd/Unicef „
Heimsins stærsta kennslustund“ fór fram í Flataskóla í morgun, en markmið hennar var að kenna börnum í yfir hundrað löndum um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt voru síðastliðinn föstudag. Markmiðin taka við af Þúsaldarmarkmiðunum svokölluðu. Í tilkynningu frá UNICEF segir að Heimsmarkmiðin séu sautján talsins og fjalli um sjálfbæra þróun og eigi að leiðbeina íbúum jarðar til næstu fimmtán ára. „Kjarninn í kennslustundinni í morgun var teiknimynd um heimsmarkmiðin en Sir Ken Robbinson, sem meðal annars er þekktur fyrir TED-fyrirlestur sinn How schools kill creativity, er hugmyndasmiður hennar. Að verkefninu koma einnig Malala Yousafzai, Serena Williams, Neymar og fleiri. Ævar vísindamaður kynnti myndbandið fyrir nemendum í Flataskóla og ræddi mikilvægi heimsmarkmiðanna. Þau snúast meðal annars um að binda endi á sárafátækt í heiminum, berjast gegn loftslagsbreytingum og gefa öllum börnum tækifæri á góðri grunnskólamenntun. Viðstaddur kennslustundina var Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra. Myndbandið er hluti af kennsluefni sem kennt verður í 100 ríkjum í dag og næstu daga. Allt að 500 milljón börn á aldrinum átta til fjórtán ára munu fá tækifæri til að læra um heimsmarkmiðin. Ráðamenn víða um heim taka þátt í kennslustundunum.Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra var viðstaddur kennslustundina.Mynd/UNICEFMikið af námsefni á netinu Hugmyndin á bak við heimsins stærstu kennslustund er gera heimsmarkmiðin vel þekkt og virkja ungt fólk til að leysa þau verkefni sem bíða okkar allra. Öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna munu vinna saman að því að innleiða markmiðin, þar á meðal Ísland. Markmiðin taka á vandamálum sem eiga sér stað um heim allan, í hátekjuríkum sem og í lág- og millitekjuríkjum. „Heimsmarkmiðin eru stórmerkileg. Þau eru líka afar brýn. Til að auka líkurnar á því að heimsbyggðin nái þeim er mikilvægt að allir viti af þeim, strax frá upphafi. Þess vegna var ráðist í að búa til sameiginlega kennslustund fyrir nemendur um allan heim,“ segir Hjördís Eva Þórðardóttir, réttindafræðslufulltrúi hjá UNICEF á Íslandi. „Hugmyndin er virkja ungt fólk til að kynna sér markmiðin og vinna með þau í sínu nærumhverfi. Ef við náum í dag að efla þekkingu ungs fólks á sjálfbærri þróun höfum við möguleika á að ná markmiðunum eftir fimmtán ár. Þetta mun ekki gerast án þeirra,“ segir Berglind Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Heimsins stærstu kennslustund fylgja bæði 30 mínútna kennsluleiðbeiningar og 60 mínútna leiðbeiningar, sem þýddar hafa verið á íslensku og eru öllum aðgengilegar á netinu. Kennarar og skólar um allt land eru hvattir til að nýta þær í kennslu. Efninu fylgir einnig teiknimyndasaga um heimsmarkmiðin, auk þess sem fjölmargar hugmyndir að kennslustundum um einstök heimsmarkið hafa verið settar á netið. Kennarar um allan heim voru hvattir til að senda inn tillögu að kennslustundum um einstök heimsmarkmið. Það voru UNICEF á Íslandi og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi sem stóðu fyrir kennslustundinni í morgun, í samvinnu við Flataskóla í Garðabæ. Flataskóli hefur tekið þátt í UNICEF-hreyfingunni í mörg ár, stutt baráttu UNICEF fyrir börn á jarðskjálftasvæðum í Nepal og haldið réttindum barna á lofti,“ segir til tilkynningunni frá UNICEF.
Tengdar fréttir Fagna yfirlýsingu Sigmundar um losun gróðurhúsalofttegunda Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir markmiðið raunhæft. 27. september 2015 13:22 Mest lesið „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Stöðvaður tvö kvöld í röð Innlent Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Innlent Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Innlent Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur Innlent Fleiri fréttir Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Þekktur rabbíni sakar Íslending um gyðingahatur 51 prósent sé nóg Bein útsending: Kynna skýrslu um áhrif ESB á bændur Óvenju annasamur júlí á fæðingardeild Landspítala Sjá meira
Fagna yfirlýsingu Sigmundar um losun gróðurhúsalofttegunda Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands segir markmiðið raunhæft. 27. september 2015 13:22