Segir flutninginn hafa verið valdsýningu fyrir fjölmiðla Nadine Guðrún Yaghi skrifar 29. september 2015 09:00 Að sögn Hólmgeirs Elíasar Flosasonar lögmanns voru ákærðu bornir inn í dómsal með miklum tilburðum í viðurvist fjölmiðla. Á myndinni má sjá fjölda lögregluþjóna þegar Börkur er borinn inn. Hólmgeir segir það hafa verið ljóst að Börkur var sárþjáður vegna brjóskloss og hann hafi þurft að leita sér aðhlynningar í kjölfarið. vísir/antonbrink „
Um mjög svipað leyti fór Börkur á heilsugæslustöð þar sem hann sat ójárnaður á biðstofunni með tveimur fangavörðum innan um gamalmenni og börn. Þeir eru ekki taldir hættulegri en það,“ segir Hólmgeir Elías Flosason, verjandi Annþórs Kristjáns Karlssonar í sakamáli gegn honum og Berki Birgissyni vegna andláts samfanga þeirra á Litla-Hrauni í maí 2012. Saksóknari krefst þess að Hólmgeiri verði dæmd réttarfarssekt fyrir ummæli sem hann lét falla við þingfestingu málsins í júní 2013. Ummæli Hólmgeirs voru í þá veru að með flutningi Annþórs og Barkar fyrir dóminn væri verið að setja á svið einhvers konar valdsýningu fyrir fjölmiðla.Hólmgeir Elías FlosasonÍ greinargerð ákærða, Annþórs, sem lögð var fram í málinu í byrjun september segir að saksóknara hafi þótt fara betur að ræsa út sérsveit ríkislögreglustjóra til þess að flytja ákærðu með miklum tilburðum í dómssal í viðurvist fjölmiðla. Var Börkur borinn inn flatur og honum hent á gólfið fyrir framan dómaraborðið, en ljóst var að hann var sárþjáður vegna brjóskloss. Hann þurfti í kjölfarið að leita sér aðhlynningar. „Þarna lá það fyrir að fjölmiðlar yrðu á staðnum og þeir voru bornir inn í fylgd margra sérsveitarmanna. Ég held því fram að þarna hafi verið sett á svið sýning á valdi lögreglunnar gegn glæpamönnum,“ segir Hólmgeir. Þá segir í greinargerðinni að rökstuðningur flutningsins hafi verið að ákærðu væru sérstaklega hættulegir almenningi og umhverfi sínu og því væri einfaldlega ekki boðlegt að færa þá fyrir dóminn með venjubundnum hætti í fylgd fangaflutningamanna. „Þó er látið óátalið að ákærðu fari í fylgd tveggja fangavarða þegar þeir fara á almenningsstaði þar sem fjölmiðlafólk er ekki,“ segir Hólmgeir. Dómarinn spurði Hólmgeir hvort hann vildi draga umrædd ummæli til baka. Hólmgeir svaraði því neitandi. „Ég er fullviss um að þetta hafi verið raunin og ég ætla að standa við orð mín.“ Aðalmeðferð málsins fer fram í október næstkomandi, rúmum þremur árum eftir að þeir voru ákærðir.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira