Egyptar biðjast afsökunar á dauða mexíkóskra ferðamanna Bjarki Ármannsson skrifar 14. september 2015 22:55 Ibrahim Mahlab, forsætisráðherra Egypta, hringdi sérstaklega í sendiherra Mexíkóa í gær til að biðjast afsökunar. Vísir/AFP
Ríkisstjórn Egyptalands baðst í gær opinberlega afsökunar á því að hafa fyrir slysni grandað tólf almennum borgurum í sprengjuárás á sunnudag. Öryggissveitir skutu þá sprengju að hópi bifreiða í eyðimörkinni í þeirri trú að þar væru hryðjuverkamenn á ferð. Meðal hinna látnu voru tólf mexíkóskir ferðamenn. Forsætisráðherra Egypta hringdi sérstaklega í sendiherra Mexíkóa í gær til að biðjast afsökunar. Innanríkisráðuneyti Egyptalands heldur því fram að hópurinn hafi ferðast inn á bannsvæði en fulltrúar ferðaþjónustunnar sem skipulagði ferðina þvertaka fyrir það.Í samtali við breska ríkisútvarpið segir formaður sambands egypskra ferðaþjónustuaðila að hópurinn hafi verið í fylgd lögreglu og að hann hafi keyrt í gegnum margar eftirlitsstöðvar áður en ráðist var á hann. Öryggissveitirnar sem skutu sprengjunni voru að eltast við íslamska uppreisnarmenn í eyðimörkinni sem liggur að landamærum Egyptalands og Líbíu. Forseti Mexíkó hefur kallað eftir því að atvikið verði rannsakað í þaula og komist verði til botns í því hvað gerðist í raun á sunnudaginn.
Mest lesið Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Innlent Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Erlent Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Innlent Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Innlent Hundruð manns í fjöldahjálparstöðvum fyrir norðan: „Það var bara snælduvitlaust veður“ Innlent „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent Um 500 leituðu skjóls í fjöldahjálparstöð og á hótelum Innlent „Mjög mikill fjöldi sem við vorum að taka á móti“ Innlent Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Erlent Enginn verði á biðlista eftir hjúkrunarrými eftir þrjú ár Innlent Fleiri fréttir Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Sjá meira