Fundin sek um að blekkja kærustuna með því að þykjast vera karlmaður Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. september 2015 15:19 Frá bænum Chester þar sem konurnar hittust meðal annars. vísir/getty
Kviðdómur í Bretlandi hefur fundið konu seka um kynferðisbrot en hún blekkti aðra konu til þess að stunda með sér kynlíf með því að þykjast vera karlmaður. Konan, Gayle Newland, brá sér í dulargervi karlmanns og breytti rödd sinni. Þá krafðist hún þess af hinni konunni að hún myndi vera með bundið fyrir augun á meðan þær stunduðu kynlíf. Konan sem þóttist vera karlmaður notaði gervityppi til þess að sofa hjá. Konurnar voru í samskiptum á netinu og í síma í tvö ár áður en þær hittust. Þá sváfu þær saman um 10 sinnum að því er fram kemur í frétt Independent. Konan sem blekkt var sagði fyrir dóm að samband þeirra hafi verið náið; hún hafi litið á konuna, sem hún hélt að væri karlmaður, sem unnusta sinn. Hún hafi hins vegar aldrei mátt líta á hann þar sem hann væri mjög óöruggur með líkama sinn. Í eitt skipti tók konan hins vegar bandið frá augum sínum og sá að kærastinn sinn var með gervityppi, og var í raun alls ekki karlmaður. Newland hefur játað að hafa notað alter-egó á internetinu þar sem hún þóttist vera karlmaður. Hún sagði að sér hafi fundist óþægilegt að vera lesbía og því hafi verið auðveldara að nálgast konur á þennan hátt. Newland neitaði hins vegar að hafa bundið fyrir augu konunnar sem hún svaf hjá og sagði að hún hefði alltaf vitað að Newland væri aðeins að þykjast vera karlmaður. Þær hafi verið í hlutverkaleik þar sem þær hafi báðar verið að kljást við kynhneigð sína.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Fleiri fréttir Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Sjá meira