Bætur vegna gæsluvarðhalds lækkaðar um tæpa milljón af Hæstarétti Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. september 2015 16:57 Af vettvangi skotárásarinnar í nóvember 2011. vísir/egill
Hæstiréttur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða karlmanni 500.000 krónur í skaðabætur þar sem hann sat í gæsluvarðhaldi að ósekju á tímabilinu 5. mars 2012 til 22. mars 2012. Áður hafði Héraðsdómur Reykjavíkur dæmt manninum 1,4 milljónir í bætur vegna gæsluvarðhaldsins. Maðurinn sat í haldi grunaður um að aðild að skotárás í Bryggjuhverfi í nóvember 2011. Hann var handtekinn 7. desember sama ár og sat í gæsluvarðhaldi til 22. mars 2012 en þá sýknaði héraðsdómur manninn af skotárásinni. Hann fór því fram á bætur vegna alls þess tíma sem hann sat í gæsluvarðhaldi en á það var ekki fallist hvorki í héraðsdómi né Hæstarétti þar sem maðurinn hafði ekki greint satt og rétt frá í yfirheyrslum og þar til hann gaf skýrslu fyrir dómi. Dóm Hæstaréttar má sjá hér.
Tengdar fréttir Höfuðpaur í skotárásarmáli í fjögurra ára fangelsi Kristján Halldór Jensson, höfuðpaurinn í skotárásarmálinu í Bryggjuhverfi, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavikur í dag. Tómas Pálsson Eyþórsson var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir aðild sína að málinu og Axel Smith var dæmdur til að greiða tæpar 70 þúsund krónur í sekt. Tómas var sá eini af sakborningunum sem var mættur við dómsuppkvaðningu. Mennirnir eru dæmdir fyrir hættubrot en ekki tilraun til manndráps. 22. mars 2012 11:40 Ósannað að byssumennirnir hafi reynt að drepa fórnarlömbin Axel Már Smith, sem var ákærður fyrir aðild að skotárás í Bryggjuhverfinu í nóvember síðastliðnum, var sýknaður af þeim ákærulið. Þetta kemur fram í dómnum sem Vísir hefur undir höndum. Þrír menn voru ákærðir í málinu. Auk Axels voru það þeir Kristján Halldór Jensson, sem var dæmdur í fjögurra ára fangelsi, og Tómas Pálsson Eyþórsson sem var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi. Skotið var á bíl við bílasöluna Höfðahöllin. 22. mars 2012 14:40 Áfram í gæsluvarðhaldi vegna skotárásar Karlmaður á þrítugsaldri hefur á grundvelli rannsóknarhagsmuna verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til áttunda desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á skotárás í Bryggjuhverfi föstudaginn 18. nóvember síðastliðinn. 2. desember 2011 16:12 Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira
Höfuðpaur í skotárásarmáli í fjögurra ára fangelsi Kristján Halldór Jensson, höfuðpaurinn í skotárásarmálinu í Bryggjuhverfi, var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavikur í dag. Tómas Pálsson Eyþórsson var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir aðild sína að málinu og Axel Smith var dæmdur til að greiða tæpar 70 þúsund krónur í sekt. Tómas var sá eini af sakborningunum sem var mættur við dómsuppkvaðningu. Mennirnir eru dæmdir fyrir hættubrot en ekki tilraun til manndráps. 22. mars 2012 11:40
Ósannað að byssumennirnir hafi reynt að drepa fórnarlömbin Axel Már Smith, sem var ákærður fyrir aðild að skotárás í Bryggjuhverfinu í nóvember síðastliðnum, var sýknaður af þeim ákærulið. Þetta kemur fram í dómnum sem Vísir hefur undir höndum. Þrír menn voru ákærðir í málinu. Auk Axels voru það þeir Kristján Halldór Jensson, sem var dæmdur í fjögurra ára fangelsi, og Tómas Pálsson Eyþórsson sem var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi. Skotið var á bíl við bílasöluna Höfðahöllin. 22. mars 2012 14:40
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna skotárásar Karlmaður á þrítugsaldri hefur á grundvelli rannsóknarhagsmuna verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til áttunda desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við rannsókn hennar á skotárás í Bryggjuhverfi föstudaginn 18. nóvember síðastliðinn. 2. desember 2011 16:12