Enn dregst úr flúormengun í grasi í Reyðarfirði sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 18. september 2015 15:13 vísir/valli
Enn mælist flúor í grasi í Reyðarfirði, en þó töluvert minna en undanfarin tvö ár. Framkvæmdar eru sex mælingar á hverju sumri og er meðaltal þeirra borið saman við viðmiðunarmörk sem sett eru í vöktunaráætlun Alcoa álversins. Mörkin segja til um hvort frekari eftirfylgni og rannsókna sé þörf eða ekki. Í haust verður safnað sýnum úr heyi sem aflað var á Reyðarfirði í sumar og verður þá hægt að sjá hvert flúorinnihaldið er í þeiri fæðu sem dýrin neyta á ársgrundvelli. Í tilkynningu frá álverinu segir að heysýnin hafi ávallt sýnt lág gildi og því megi reikna með að talan fyrir flúorinnihald í fæðu dýranna komi til með að lækka enn frekar. Engar vísbendingar séu um að flúor í grasi hafi haft áhrif á grasbíta. Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa Fjarðaráls, segir í tilkynningunni að ánægjulegt sé að sjá staðfestingu þess hve vel hafi gengið, enda séu umhverfismál og velferð samfélagsins ávallt í fyrirrúmi í stefnu fyrirtækisins. „Starfsfólkið hefur lagt sitt af mörkum til að ná sífellt betri árangri en ytri aðstæður sem við höfum ekki stjórn á, svo sem veður, hafa einnig áhrif á flúor sem mælist í grasi,“ segir hann. Flúormagn í grasi í Reyðarfirði er 36 prósentum minna nú en árið 2014, en það sumar dró einnig úr flúor miðað við sumarið 2013, eða um 19 prósent. Meðaltal nýliðins sumar var 19,7 míkrógrömm saman borið við 30,8 árið 2014 og 37,8 sumarið 2013. Uppfært:Alcoa bendir réttilega á að flúor mælist alltaf í einhverju magni nálægt öllum álverum. Flúormagnið í Reyðarfirði sé langt undir mörkum. Fyrirsögn fréttarinnar hefur því verið breytt.
Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira