Heimilar japanska hernum að taka þátt í hernaðaraðgerðum erlendis Atli Ísleifsson skrifar 18. september 2015 23:30 Shinzo Abe forsætisráðherra hafði mikið talað fyrir samþykkt frumvarpanna en stjórnarandstaðan gagnrýndi þau harðlega. Vísir/EPA
Efri deild japanska þingið staðfesti í dag umdeild frumvörp sem kveða á um að her landsins megi nú taka þátt í hernaðaraðgerðum á erlendri grundu. Þátttakan er þó háð ákveðnum skilyrðum. Um er að ræða meiriháttar breytingu á utan- og varnarmálastefnu Japans, sem hefur einkennst af friðarstefnu allt frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. 148 þingmenn greiddu atkvæði með frumvörpunum en níutíu gegn. Neðri deild þingsins samþykkti frumvörpin í júlí síðastliðinn. Með lagabreytingunum er níunda grein stjórnarskrárinnar túlkuð á nýjan hátt, en greinin leggur blátt bann við að alþjóðlegar deilur skuli leystar með vopnuðum átökum. Með nýrri túlkun verður japanska hernum hins vegar heimilt, að takmörkuðu leyti þó, að verja bandamenn sína í vopnuðum deilum á erlendri grundu. Þátttaka og störf japanskra hermanna erlendis voru áður einskorðuð við mannúðarstörf. Shinzo Abe forsætisráðherra hafði mikið talað fyrir samþykkt frumvarpanna en stjórnarandstaðan gagnrýndi þau harðlega. Ríkisstjórnin segir breytinguna nauðsynlega til að takast megi á við hernaðarlegan uppgang nágrannaríkja á borð við Kína og Norður-Kóreu. Fjölmenn mótmæli gegn lagabreytingum hafa verið í landinu á síðustu mánuðum.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Erlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Fleiri fréttir Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Sjá meira