Rannsókn á dauða Arafat hætt Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 2. september 2015 23:35 Yasser Arafat var greindur með alvarlegan blóðsjúkdóm skömmu áður en hann lést vegna heilablóðfalls þann 8. nóvember 2004, 75 ára að aldri. Vísir/AFP
Franskir dómarar sem rannsakað hafa möguleikann á því að eitrað hafi verið fyrir Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna sem dó árið 2004, hafa hætt rannsókn málsins. Yasser Arafat var greindur með alvarlegan blóðsjúkdóm skömmu áður en hann lést vegna heilablóðfalls þann 8. nóvember 2004, 75 ára að aldri.Í frétt BBC kemur fram að eiginkona hans, Suha Arafat, hafi haldið því fram að eitrað hafi verið fyrir eiginmanni sínum, mögulega með hinu geislavirka efni pólóníum-210. Árið 2012 kannaði sjónvarpsstöðin Al-Jazeera, með hjálp svissneskra rannsakenda, möguleikann á því hvort að eitrað hafi verið fyrir Arafat. Samkvæmt niðurstöðu þeirrar rannsóknar fannst óeðlilega mikið magn af pólóníum-210 á persónulegum munum Arafat. Í kjölfar rannsóknarinnar kallaði eiginkona hans eftir því að lík hans yrði grafið upp. Þremur rannsóknarteymum - frá Rússlandi, Sviss og Frakklandi - var heimilað að taka sýni úr gröf Arafat en fyrr á árinu gaf franska rannsóknarteymið það út að leifar af pólóníum-210 sem finna mátti í sýnunum hefðu verið þar af náttúrulegum orsökum. Rannsóknardómararnir í Frakklandi, sem falið var að rannsaka málið, hafa nú komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið hægt að sýna fram á að eitrun hafi valdið dauða Arafat. Tawfiq Tirawi, yfirmaður rannsóknar palestínskra yfirvalda á dauða Arafat, sagði í samtali við AFP að af þeirra hálfu myndi rannsókn málsins halda áfram, allt þangað til það væri komið á hreint hvað hafi valdið dauða Arafat.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira