Vill körfurólu af skólalóð Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 5. september 2015 20:15
Sjö ára drengur tognaði í baki þegar svokölluð körfuróla, sem sex önnur börn sátu í, lenti á honum þegar hann var að leik á skólalóð fyrir skemmstu. Móðir drengsins telur mikla slysahættu vera af rólum af þessum toga og vill að þær verði fjarlægðar af skólalóðum grunn- og leikskóla. Í gær greindum við frá því að svokallaðar körfurólur hafi valdið tveimur alvarlegum slysum hér á landi að undanförnu. Samskonar slys hafa einnig orðið í öðrum Evvrópuríkjum, þar af eitt banaslys. Körfurólur eru margvíslegar en þær eru lögleg leikvallatæki og uppfylla staðla leikvallareglugerða. Rólurnar njóta mikilla vinsælda og eru á fjölmörgum leikvöllum og skólalóðum, en þær eru bæði framleiddar hér á landi og erlendis. Slysið sem varð í sumar þar sem ungur drengur hryggbrotnaði varð í rólu sem framleidd var erlendis en evrópsk nefnd vinnur nú að því að endurskoða staðla yfir allar samskonar rólur. Sjö ára drengur, Gunnleifur Orri, tognaði í baki eftir að hafa orðið fyrir körfurólu fyrir skemmstu. „Það voru sex krakkar í rólunni og hann er einn af tveim sem eru að ýta. Hann lendir í því að renna undir róluna þegar hann ýtir af öllu afli, fær róluna svo í bakið og í hökuna þegar hann reisir sig upp og er að reyna að koma sér á fætur. Hann lendir það illa á bakinu að hann tognar illa á baki og fær vægt höfuðhögg,“ segir Hildur Einarsdóttir móðir Gunnleifs. Hildur skrifaði um málið á Facebooksíðu sína eftir að hafa farið með son sinn á bráðamóttöku og skapaðist heilmikil umræða um málið. Til að mynda er greint frá því að sex ára barn hafi lærbrotnað eftir að hafa fengið samskonar rólu á sig. Hildur segir hjúkrunarfræðingur skólans haft orð á því við hana að flest þeirra slysa sem verði á skólalóðinni mætti rekja til rólunnar. Hún vill að rólan verði fjarlægð. „Það bara hljóta að vera til leiktæki sem hentar betur, ég trúi ekki öðru,“ segir Hildur.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira