Stefnir í metár hælisumsókna á árinu Óli Kristján Ármannsson skrifar 9. september 2015 07:00 Múslimskar konur kæla sig í Jónahafi nærri Saranda í Albaníu. vísir/epa „
Allt útlit er fyrir að árið 2015 verði metár í hælisumsóknum á Íslandi,“ segir í umfjöllun á vef Útlendingastofnunar. Frá ársbyrjun og til ágústloka höfðu 154 einstaklingar sótt hér um hæli, sem er sagt 66 prósenta aukning frá fyrra ári. Þá höfðu á sama tíma borist 93 hælisumsóknir. „Í ágúst sóttu 49 manns um hæli á Íslandi en það eru jafn margir og sóttu um samtals síðustu þrjá mánuðina á undan,“ segir á vef stofnunarinnar og einnig bent á að árið 2009 hafi 35 manns sótt hér um hæli. Umsækjendur eru af 32 þjóðernum og einn ríkisfangslaus. „Albanar eru langfjölmennastir og telja 51 umsækjanda, rétt tæplega þriðjung allra umsókna.“ Í öðru sæti eru Sýrlendingar, 18 talsins eða 12 prósent umsókna, en í Sýrlandi geisar borgarastyrjöld. Útlendingastofnun áréttar að í ljósi borgarastyrjaldarinnar í Sýrlandi komi ekki til greina að vísa Sýrlendingum aftur þangað. „Sé hætta á að sýrlenskum umsækjendum sé vísað þangað, verði þeim snúið til annars Evrópuríkis, kemur ekki til greina að senda þá til viðkomandi ríkis.“ Í lok ágúst hafði Útlendingastofnun veitt 48 manns hæli eða aðra vernd á árinu. Fimmtíu var synjað um vernd en öðrum málum er sagt hafa lokið með öðrum hætti. „Af þeim málum sem lauk með ákvörðun – þar sem umsækjandi dró umsókn ekki til baka eða lét sig hverfa – var veitt vernd í 35 prósentum tilfella. 36 prósentum mála lauk með synjun um hæli og ræður hið háa hlutfall umsækjenda frá Balkanskaga miklu þar um.“ Í 29 prósentum tilvika var fólk sent aftur til annars Evrópuríkis, ýmist samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni eða á grundvelli þess að umsækjandi hafði þegar fengið þar veitta vernd.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira