Innlent

Gagnrýndi harðlega hugmyndir um nýjan þjóðarleikvang

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Steinunn Þóra Árnadóttir, þingkona Vinstri grænna.
Steinunn Þóra Árnadóttir, þingkona Vinstri grænna. Vísir/Heiða
Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður VG, gaf ekki mikið fyrir hugmyndir um að reisa nýjan þjóðarleikvang í ræðu sinni á Alþingi í kvöld.  

„Mestöll þjóðin var í sigurvímu eftir jafntefli íslenska karla-knattspyrnuliðsins um liðna helgi. Fáir þó eins og hæstvirtur fjármálaráðherra, sem fór þegar í fjölmiðlum að gefa undir fótinn með byggingu risavaxins knattspyrnuvallar upp á 15-20 milljarðar króna,“ sagði Steinunn

„Þessi höll, myndi mögulega - að sögn hæstvirts ráðherrans - ekki kosta skattgreiðendur neitt, ekki frekar en Hvalfjarðargöngin. Hana mætti nefnilega reisa með töfraformúlunni „eignatryggðri fjármögnun”. En eignatryggð fjármögnun mun vera það sem hét „einkaframkvæmd í opinberum rekstri” áður en það hugtak fékk óorð á sig,“ sagði hún ennfremur og bætti við:

„En auðvitað komum við til með að borga fyrir slíka framkvæmd, ef af yrði – á sama hátt og við greiðum enn í hvert sinn sem við ökum undir Hvalfjörð. Einkaframkvæmdadekrið hefur þann eina raunverulega tilgang að gefa milliliðum kost á að hagnast.“

Steinunn sagði að þessar hugmyndir væru þó ekki eina dæmi þess að stjórnarflokkarnir hefðu „kokgleypt“ kenningar um ágæti einkarekstrarformsins.

„Það er nefnilega raunveruleg ástæða til að óttast að ríkisstjórnin hyggi lengra inn á brautir einkarekstrar og verktöku í velferðarmálum, með tilheyrandi sveltistefnu gagnvart opinbera kerfinu. Það mun aðeins leiða til aukinnar mismunar og meiri kostnaðar fyrir samfélag og einstaklinga.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×