„Dómurinn er enn ein vísvitandi atlagan að tjáningarfrelsi fjölmiðla“ Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 30. ágúst 2015 11:10 Mennirnir þrír störfuðu allir fyrir Al Jazeera.
Þrír fréttamenn Al Jazeera voru í gær dæmdir til fangelsisvistar fyrir að hafa aðstoðað hryðjuverkasamtök. Ferlið hefur verið langt en málið var tekið til endurrannsóknar fyrir rétti. Mohamed Fahmy og Baher Mohamed voru í Egyptalandi þar sem réttarhöldin fóru fram. Dómur yfir þeim síðarnefnda var þyngdur um hálft ár. Hinn ástralski Peter Greste sem var vísað úr landi í febrúar fyrr á árinu var dæmdur án þess að vera viðstaddur. Mönnunum var gert að sök að hafa aðstoðað samtökin Múslimska bræðralagið en meðlimir þess voru gerðir útlægir frá Egyptalandi eftir að herinn steypti árið 2013 Mohamed Morsy þáverandi forseta landsins af stóli. Mikil mótmæli höfðu verið í landinu. Dómarinn í gær nefndi ekki hryðjuverk en sagði að fréttaefni blaðamannanna hafi innihaldið falskar fréttir og að þær hafi verið sendar í loftið í því skyni að skaða Egyptaland. Málsaðilar sögðust hafa verið að vinna vinnuna sína sem felst í því að segja allar hliðar á því sem átti sér stað í Egyptalandi á þessum tíma. Mostefa Souag, ritstjóri Al Jazeera, hefur fordæmt dóminn og segir hann ganga gegn skynsemi og rökréttri hugsun auk þess sem réttarhöldin hafi verið óréttlát og undir miklum pólitískum áhrifum. „Dómurinn er enn ein vísvitandi atlagan að tjáningarfrelsi fjölmiðla. Þetta er svartur dagur í sögu egypskra dómstóla, frekar en að verja frelsi og frjálsa og sanngjarna fjölmiðlun hafa dómstólarnir fórnað hlutleysi sínu af pólitískum ástæðum.“ Mennirnir þrír voru fyrst dæmdir á síðasta ári fyrir að hafa setið á svikráðum við Múslimska bræðralagið, fyrir að deila fölskum fréttum og setja þjóðaröryggi í hættu en þeir hafa alltaf sagst saklausir af þessum ásökunum. Ástralinn Peter Greste sagðist á Twitter vera í áfalli, hann væri reiður og í raun misboðið. Hann sagði engin sönnunargögn renna stoðum undir dóminn.“
Tengdar fréttir Ástralskur blaðamaður laus úr fangelsi í Egyptalandi Peter Greste var sakaður um að falsa fréttir og að starfa með múslimska bræðralaginu. 1. febrúar 2015 14:52 Mest lesið „Það er hetja á Múlaborg“ Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent Flösku með bensíni kastað í hús í Hafnarfirði Innlent Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Innlent Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið Innlent Góður fundur en fátt fast í hendi Erlent Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Erlent Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Innlent Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Innlent „Réttu spilin og réttu vopnin“ Innlent Fleiri fréttir „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Hamasliðar ganga að tillögum um 60 daga vopnahlé Góður fundur en fátt fast í hendi Rýnt í sögulegan fund: Skref nær friði eða meiri vonbrigði? Vaktin: Ráðast örlög Úkraínu í Washington DC? Mögulegt að ná fram öryggistryggingum en aðild að NATO úr myndinni Ákærður fyrir fjórar nauðganir Gífurlegur munur á pyngjum flokkanna vestanhafs Segja að stjúpsonur norska krónprinsins verði ákærður Hægri sveifla í Bólivíu eftir tveggja áratuga stjórnartíð sósíalista Handtekinn í tengslum við morðið við mosku í Örebro „Rússar verða að binda enda á stríðið sem þeir hófu“ Flugþjónar Air Canada bjóða yfirvöldum birginn Trump segir Selenskí geta valið um að binda enda á stríðið eða berjast áfram Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Sjá meira
Ástralskur blaðamaður laus úr fangelsi í Egyptalandi Peter Greste var sakaður um að falsa fréttir og að starfa með múslimska bræðralaginu. 1. febrúar 2015 14:52