Brotið á rétti fatlaðs fólks í Vesturbyggð Nadine Guðrún Yaghi skrifar 31. ágúst 2015 07:00 Vesturbyggð hefur ekki boðið fötluðum íbúum sveitarfélagsins upp á lögbundna ferðaþjónustu í mörg ár. Vísir/Anton brink „
Um þessi mál hafa allir þagað á sama tíma og allt verður vitlaust ef fatlaður Reykvíkingur þarf að bíða í einn eða tvo klukkutíma eftir flutningi,“ segir Valdimar Össurarson, sem hefur barist fyrir rétti fatlaðra í sveitarfélaginu Vesturbyggð um tíma. Móðir Valdimars er bundin við hjólastól og býr í því sveitarfélagi.Valdimar ÖssurarsonAð sögn Valdimars hefur sveitarfélagið komist upp með að brjóta lög um málefni fatlaðra, jafnræðisreglu Stjórnarskrárinnar og Mannréttindasáttmála Sameinuðu Þjóðanna í mörg ár með því að bjóða ekki upp á lögbundna ferðaþjónustu fyrir fatlaða. Þar sé enginn bíll til slíks akstur. „Það eru margvísleg lögbrot sem fatlað fólk í Vesturbyggð sætir af hálfu opinberra aðila. Vesturbyggð er lítið samfélag og því er málið viðkvæmt. Fatlaðir í sveitarfélaginu eru þannig í mjög slæmri aðstöðu til að sækja rétt sinn.“ Sveitarfélagið samanstendur af fjórum hreppum og eru Patreksfjörður og Bíldudalur aðalþéttbýliskjarnarnir. Þar búa rúmlega eitt þúsund manns. Í lögum um málefni fatlaðs fólks segir að sveitarfélög skuli gefa fötluðu fólki kost á ferðaþjónustu. Markmið ferðaþjónustu fatlaðs fólks sé að gera þeim sem ekki geta nýtt sé almenningsfarartæki vegna fötlunar kleift að stunda atvinnu og nám og njóta tómstunda.Sigurjón Unnar Sveinsson„Þetta er eitt af þeim ákvæðum sem er einna skýrast í lögunum. Það er mjög alvarlegt ef sveitarfélag sér ekki að hér er um skyldu að ræða. Þeir hafa sagt í tvö ár að þeir séu að að reyna semja við verktaka til að keyra bíl en aldrei hefur neitt verið gert,“ segir Sigurjón Unnar Sveinsson, lögfræðingur hjá Öryrkjabandalagi Íslands og bætir við að málið sé algjörlega óásættanlegt. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, staðfestir að ekki sé í boði ferðaþjónusta fyrir fatlaða í Vesturbyggð. „Við höfum reynt að semja við verktaka um málið og vorum búin að semja við aðila en hann gaf svo verkefnið frá sér.“Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóriÁsthildur segir að unnið sé í því að finna verktaka á svæðinu til þess að taka að sér akstur fatlaðra. Ábyrgðin sé þó ekki á sveitarfélaginu heldur ríkinu. „Þeir aðilar sem þurfa á ferðaþjónustu að halda í Vesturbyggð eru allir á sjúkrahúsi og er það því hlutverk ríkisins að halda utan um þá aðila. Þetta er í raun ekki í okkar höndum,“ segir Ásthildur og bætir við að sveitarfélagið vilji hins vegar koma upp þjónustu fyrir fatlaða. „Við viljum sinna fötluðum íbúum vel og höfum verið að reyna finna lausn í þessi mál. Fyrir lítið sveitarfélag er þetta gríðarlega mikill kostnaður.“ Sigurjón segir engu máli skipta að fatlaðir einstaklingar í Vesturbyggð séu á sjúkrahúsum. Skyldan sé lögbundin. „Þetta er ekkert flókið. Þeir eru ekki að sinna því sem þeim ber að gera samkvæmt lögum."
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Fleiri fréttir Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Sjá meira