Skotinn til bana vegna tveggja gramma af grasi Stefán Ó. Jónsson skrifar 3. ágúst 2015 20:09 Lögreglan í Memphis við rannsókn á svæðinu þar sem Sean Bolton var skotinn. Vísir/Epa
Lögreglumaðurinn Sean Bolton var skotinn til bana í bandarísku borginni Memphis á laugardag. Að sögn lögregluyfirvalda í Tennessee hafði Bolton rekið augun í bíl sem var ólöglega lagt og ákvað að grennslast fyrir um málið. Þegar hann steig út úr bíl sínum og lýsti með vasaljósinu inn um rúðu þess illa lagða brást farþegi bílsins ókvæða við og réðst á Bolton. Töluverð átök brutust þá út milli mannanna sem enduðu með því að Bolton var skotinn til bana. „Bolton virðist hafa stöðvað einhvers konar fíkniefnaviðskipti. Í bílnum fundust stafræn vigt og lítill poki af maríjúana,“ sagði talsmaður lögreglunnar í Memphis í samtali við fjölmiðla um helgina. „Við erum að tala um að þetta hafi verið innan við tvö grömm af grasi. Þetta er minniháttar fíkniefnabrot. Ég efast um að þeir hefðu verið dæmdir til fangelsisvistar,“ bætti talsmaðurinn við.Tremaine Wilburn, sá sem talið er að hafi banað SeanMemphis Police Department19 lögreglumaðurinn sem fellur Hinn 29 ára gamli Tremain Wilbourn er grunaður um að hafa orðið Bolton að bana. Hann gengur laus og er talinn vopnaður og hættulegur umhverfi sínu. Ökumaðurinn bílsins hefur gefið sig fram og talið er að hann verði ekki kærður fyrir aðkomu sína á morðinu á Bolton. Morðinu er lýst í fjölmiðlum vestanhafs sem sérstaklega tilefnislausu enda hafði lögregluþjónninn einungis verið að grennslast fyrir um smávægilegt umferðalagabrot. Sean Bolton er 19 lögregluþjónninn sem hefur dáið í Bandaríkjunum í ár eftir viðskipti við glæpamenn.
Mest lesið Hljóp inn í brennandi byggingu til að bjarga nágrannanum Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Svona mun Suðurlandsbraut líta út Innlent Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Innlent Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Innlent Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Erlent Sveitarstjóra ekki heimilt að banna hundahald Innlent Afi fór ekki yfir strikið með meintri rassskellingu Innlent „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Innlent Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Erlent Fleiri fréttir Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Sjá meira