Öryggiskerfið var tekið af Firðinum klukkustund fyrir ránið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. ágúst 2015 11:39 Skjáskot úr öryggismyndavél. Lögreglan birti myndband úr vélum í Firðinum í gær í þágu rannsóknar málsins.
Enginn hefur verið handtekinn vegna ránsins í skartgripaverslunina Úr og gull í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði á laugardag. Ein húsleit hefur farið fram. Eigendur meta tjónið á tugi milljóna króna. Framkvæmdastjóri Fjarðarins segir ljóst að fagþjóf hafi verið að ræða sem vel hafi þekkt til í Firðinum. Helgi Gunnarsson, rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni í Hafnarfirði, segir lögregluna hafa fengið nokkrar ábendingar sem verið sé að vinna úr. Enginn hafi verið handtekinn. Þjófurinn braut sér leið inn í verslunarmiðstöðina um klukkan 6:30 á sunnudagsmorgun. Klukkustund fyrr hafði borist ábending frá reiðhjólamanni við Fjörðinn sem varð til þess að öryggisvörður fór á svæðið og tók öryggiskerfið af Firðinum. Klukkustund síðar lét ræninginn greipar sópa og komst inn í verslunarmiðstöðina án þess að öryggiskerfi færi í gang, enda óvirkt.Telja símtalið ekki tengjast ráninu Guðmundur Bjarni Harðarson, framkvæmdastjóri Fjarðarins, segir að í fyrstu hafi beinst grunur á að ránið tengdist símtalinu frá hjólreiðamanninum sem varð til þess að kerfið var tekið af. Eftir athugun virðist um aðskilin mál að ræða. „Þetta virðist vera maður sem þekkir vel til í Firðinum,“ segir Guðmundur. Hann hafi farið inn í miðstöðina um neyðarinngang og svo haldið á brott á öðrum stað. Þá hafi hann haft vit á því hvað var verðmætast í búðinni. „Hann fer beint í dýrustu hlutina og skilur annað eftir,“ segir Guðmundur. Hann hafi heyrt að ein húsleit hafi farið fram í tengslum við rannsókn málsins. Öryggiskerfið í versluninni Úr og gull fór í gang. Kerfið er hins vegar þannig að það býr aðeins til læti en er ekki tengt öryggisfyrirtæki. Guðmundur segir það ekki skrýtið í ljósi þess að 99% tímans sé fólk í Firðinum. Þar sé heilsugæsla, bakarí, lyfjaverslun og því sé nánast alltaf einhver inni í húsinu.Fjörðurinn opinn 360 daga á ári „Þetta er fagþjófur og einstaklingur sem þekkir greinilega vel til í Firðinum,“ segir Guðmundur. Það sé engin tilviljun að þjófurinn hafi valið þennan dag. Fjörðurinn sé líklega opinn 360 daga á ári. Laugardagurinn hafi verið einn örfárra þar sem enginn var á ferð. Um er að ræða karlmann sem var klæddur í bláa Hummel íþróttapeysu. Hann var með derhúfu og er skyggnið með íslensku fánalitunum. Eins var hann með bakpoka sem merktur var Hummel og HK. Þeir sem hafa upplýsingar um manninn eru beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1142 eða einkaskilaboð á Facebooksíðu LRH.Kristjana Guðbrandsdóttir, fréttamaður á Stöð 2, leit við í Firðinum í gær. Þar má sjá hvaða leið þjófurinn fór inn í verslunina. Fréttin er í heild sinni hér að neðan.
Tengdar fréttir Hafði með sér skart fyrir tugi milljóna Þjófur lét greipar sópa í skartgripaverslun í Firðinum í Hafnarfirði og tók allt gull, flest allt silfur og alla demanta verslunarinnar auk fjölda annarra dýrmætra gripa. 3. ágúst 2015 21:24 Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ. Innlent Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Fleiri fréttir Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík Sjá meira
Hafði með sér skart fyrir tugi milljóna Þjófur lét greipar sópa í skartgripaverslun í Firðinum í Hafnarfirði og tók allt gull, flest allt silfur og alla demanta verslunarinnar auk fjölda annarra dýrmætra gripa. 3. ágúst 2015 21:24