Reynt að smygla metmagni af fílabeini Heimir Már Pétursson skrifar 4. ágúst 2015 19:56 Heinz Widmer með eitt beinanna sem reynt var að smygla. Vísir/EPA
Tollverðir á flugvellinum í Zurich í Sviss lögðu nýlega hald á tæp þrjú hundruð kíló af ólöglegu fílabeini. Þetta er mesta magn sem tollverðir þar hafa lagt hald á til þessa. Fílabeinið kom í leitirnar hinn 6. júlí en ekki var greint frá þessu fyrr en í dag. Fyrst var leitað í tveimur ferðatöskum farþega sem komu frá borginni Dar Es Salaam í Tansaníu og voru á leið til Kína um Zurich flugvöll. En lögregla krefst þess að leitað sé í farangri þaðan. Heinz Widmer yfirtollvörður segir að fyrst hafi verið leitað á farþegunum og við skoðun farmiða komið í ljós að þrír Kínverjar væru að ferðast saman með átta ferðatöskur. „Allar töskurnar átta voru troðfullar af fílabeini, 172 stykki í það heila,“ segir Widmer. Beinin vógu samtals 262 kíló og er talið að hægt væri að selja það fyrir tæpar 54 milljónir króna. Beinin voru bæði af fullorðnum fílum og kálfum. Aldrei áður hefur svo mikið magn af ólöglegu beini fundist í Zurich. Mathias Lortscher hjá Svissnesku matvælastofnuninni segir að aldrei hafi verið lagt hald á eins mikið magn af fílabeini í landinu. „Hingað til höfum við einungis fundið lítið magn. Yfirleitt um tvö til tíu kíló. En aldrei svona mikið. Þannig að við höldum að smyglararnir hafi verið að reyna nýja smyglleið sem gekk ekki upp,“ segir Lortscher. Tollgæslan segir smyglarana ekki nota ólíkar aðferðir og fíkniefnasmyglarar. „Við þekkjum þessar aðferðir frá fíkniefnasmyglurum. Skipulagðir glæpamenn reyna oft að senda átta til tíu ferðatöskur í þeirri von að tollarar finni kannski bara eina en hingar komist í gegn,“ segir Widmer.
Mest lesið Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður Skiptar skoðanir um stækkun Þjóðleikhússins Innlent „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Erlent Fleiri fréttir Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Sjá meira