Ísraelska þingið samþykkir umdeild lög 30. júlí 2015 13:34 Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, ræðir við Reuven Rivlin, forseta Ísraels. VÍSIR/AFP
Knesset, ísraelska þingið, hefur samþykkt lög sem leyfa það að fæði sé neytt ofan í fanga sem eru í hunguverkfalli. Samkvæmt lögunum þarf dómari að gefa leyfi í hverju tilviki fyrir sig. Palestínubúar sem eru í haldi í ísraelskum fangelsum hafa gripið til þess ráðs að fara í hungurverkföll. Er það gert til að mótmæla því að hægt sé að halda þeim í gæsluvarðhaldi án ákæru eða réttarhalda. Samtök lækna í Ísrael hafa fordæmt setningu laganna og segja að þvingun fæðis ofan í fanga sé ígildi pyntinga. Jafnframt hafa samtökin hvatt lækna til þess að taka ekki þátt í þessu athæfi. Læknasamtökin ætla að fara með málið fyrir Hæstarétt Ísraels en lögin voru samþykkt með naumum meirihluta, 46 þingmenn sögðu já en 40 þingmenn nei. Ráðherra innanríkisöryggismála Ísrael, Gilad Erden, telur þessa ráðstöfun vera nauðsynlega en lagafrumvarpið var samið í kjölfar fjölda hungurverkfalla palestínskra fanga sem haldið var án ákæru eða réttarhalda árið 2012. „Hungurverkföll hryðjuverkamanna eru orðin að tækjum til þess að setja pressu á ísraelska ríkið til þess að leysa hryðjuverkamenn úr haldi.“ Fyrr í mánuðinum var palestínska fanganum Khader Adnan sleppt úr haldi úr ísraelsku fangelsi eftir 56 daga hungurverkfall. Honum hafði verið haldið án ákæru í eitt ár.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Sjá meira