Innlent

Niðurstöður fimm erlendra sérfræðinga á öndverðum meiði við niðurstöður þeirra íslensku

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson voru ákærðir fyrir að hafa beitt fangann ofbeldi sem leiddi til dauða hans en þeir hafa báðir ávallt neitað sök.
Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson voru ákærðir fyrir að hafa beitt fangann ofbeldi sem leiddi til dauða hans en þeir hafa báðir ávallt neitað sök. vísir/vilhelm
Allir þeir erlendu sérfræðingar sem fengnir voru til að meta skýrslur um andlát fanga á Litla-Hrauni í maí 2012 hafa nú skilað niðurstöðum sínum. Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson voru ákærðir fyrir að hafa beitt fangann ofbeldi sem leiddi til dauða hans en þeir hafa báðir ávallt neitað sök.

Þrír íslenskir sérfræðingar, réttarmeinafræðingur og tveir sálfræðingar, skiluðu á sínum tíma skýrslum vegna andláts fangans. Verjendur Annþórs og Barkar fóru hins vegar fram á að yfirmatsmenn myndu fara yfir þær skýrslur og þurfti að leita út fyrir landsteinana að þeim, tveimur réttarmeinafræðingum og þremur sálfræðingum.

Það tafðist hins vegar mjög að skýrslurnar skiluðu sér, bæði vegna þess að erfiðlega gekk að finna yfirmatsmenn og svo vegna þess að einn sálfræðingurinn skilaði ekki sínu mati fyrr en í byrjun síðustu viku. Að því er fram kemur í frétt RÚV var það vegna þess að hann veiktist og þurfti að taka sér langt veikindaleyfi.

Aðalmeðferð gæti verið í haust

Hólmgeir Elías Flosason, verjandi Annþórs, segist búast við því að fyrirtaka verði í málinu í lok ágúst eða byrjun september í Héraðsdómi Suðurlands og aðalmeðferð í gæti þá verið síðar í haust.

Hólmgeir vill ekki fara í smáatriðum út í niðurstöður erlendu sérfræðinganna en segir þær þó allar algjörlega á öndverðum meiði við niðurstöðu íslensku sérfræðinganna.

Greint var frá niðurstöðum tveggja af erlendu sérfræðingunum í Fréttablaðinu í apríl síðastliðnum. Þar kom fram að íslenski réttarmeinafræðingurinn hefði komist að þeirri niðurstöðu að áverka hins látna mætti rekja til þungs höggs.

Sidsel Rogde, prófessor í réttarmeinafræði við Háskólann í Osló, var önnur þeirra erlendu réttarmeinafræðinga sem lögðu mat á skýrslu íslenska sérfræðings. Niðurstaða hennar var meðal annars sú að ólíklegt væri að áverkar þeir sem leiddu til dauða fangans, sem voru rifa á milta, væru tilkomnir eftir högg eða spark, þótt það væri ekki algjörlega útilokað.

Sagði íslensku sálfræðingana hlutdræga

Þá komust tveir íslenskir prófessorar að þeirri niðurstöðu að ljóst sé af upptökum úr öryggismyndavélum á Litla-Hrauni að hinum látna hafi staðið ógn af Annþóri og Berki, þeir hafi verið ógnandi og hinn látni hræddur við þá í aðdraganda málsins.

Einn erlendu sérfræðinganna, David J. Cooke, prófessor í klíniskri réttarsálfræði, gagnrýnir hins vegar mjög niðurstöður íslensku prófessoranna og kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að aðferðarfræði þeirra uppfylli ekki þær gæðakröfur sem almennt eru gerðar í réttarsálfræði.

Í skýrslu sinni gerir hann auk þess athugasemdir við hlutdrægni sálfræðinganna sem hafi þekkt til ákærðu þegar þeir komust að niðurstöðum sínum.


Tengdar fréttir

Ekkert þokast í manndrápsmáli síðan í vor

Annþór og Börkur voru vistaðir á öryggisgangi á Litla-Hrauni eftir að málið kom upp, aðskildir frá öðrum föngum. Þeir eru nú á almennum gangi en þó ekki á sama gangi.

Segir áverkana ekki tilkomna eftir högg

Niðurstöður yfirmatsmanna á atburðarás og áverkum manns sem lést á Litla-Hrauni eru á skjön við niðurstöður íslenskra sérfræðinga. Réttarmeinafræðingur segir líklegra að áverkar séu tilkomnir eftir endurlífgunartilraunir en ofbeldi.

Fá sérfræðinga frá Noregi og Svíþjóð

Tveir sérfræðingar verða á föstudag fengnir til að fara yfir mat á krufningarskýrslu í máli Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar sem gefið er að sök hafa valdið dauða samfanga síns á Litla-Hrauni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×