Niðurstöður fimm erlendra sérfræðinga á öndverðum meiði við niðurstöður þeirra íslensku Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. júlí 2015 18:10 Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson voru ákærðir fyrir að hafa beitt fangann ofbeldi sem leiddi til dauða hans en þeir hafa báðir ávallt neitað sök. vísir/vilhelm
Allir þeir erlendu sérfræðingar sem fengnir voru til að meta skýrslur um andlát fanga á Litla-Hrauni í maí 2012 hafa nú skilað niðurstöðum sínum. Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson voru ákærðir fyrir að hafa beitt fangann ofbeldi sem leiddi til dauða hans en þeir hafa báðir ávallt neitað sök. Þrír íslenskir sérfræðingar, réttarmeinafræðingur og tveir sálfræðingar, skiluðu á sínum tíma skýrslum vegna andláts fangans. Verjendur Annþórs og Barkar fóru hins vegar fram á að yfirmatsmenn myndu fara yfir þær skýrslur og þurfti að leita út fyrir landsteinana að þeim, tveimur réttarmeinafræðingum og þremur sálfræðingum. Það tafðist hins vegar mjög að skýrslurnar skiluðu sér, bæði vegna þess að erfiðlega gekk að finna yfirmatsmenn og svo vegna þess að einn sálfræðingurinn skilaði ekki sínu mati fyrr en í byrjun síðustu viku. Að því er fram kemur í frétt RÚV var það vegna þess að hann veiktist og þurfti að taka sér langt veikindaleyfi.Aðalmeðferð gæti verið í haust Hólmgeir Elías Flosason, verjandi Annþórs, segist búast við því að fyrirtaka verði í málinu í lok ágúst eða byrjun september í Héraðsdómi Suðurlands og aðalmeðferð í gæti þá verið síðar í haust. Hólmgeir vill ekki fara í smáatriðum út í niðurstöður erlendu sérfræðinganna en segir þær þó allar algjörlega á öndverðum meiði við niðurstöðu íslensku sérfræðinganna. Greint var frá niðurstöðum tveggja af erlendu sérfræðingunum í Fréttablaðinu í apríl síðastliðnum. Þar kom fram að íslenski réttarmeinafræðingurinn hefði komist að þeirri niðurstöðu að áverka hins látna mætti rekja til þungs höggs. Sidsel Rogde, prófessor í réttarmeinafræði við Háskólann í Osló, var önnur þeirra erlendu réttarmeinafræðinga sem lögðu mat á skýrslu íslenska sérfræðings. Niðurstaða hennar var meðal annars sú að ólíklegt væri að áverkar þeir sem leiddu til dauða fangans, sem voru rifa á milta, væru tilkomnir eftir högg eða spark, þótt það væri ekki algjörlega útilokað.Sagði íslensku sálfræðingana hlutdræga Þá komust tveir íslenskir prófessorar að þeirri niðurstöðu að ljóst sé af upptökum úr öryggismyndavélum á Litla-Hrauni að hinum látna hafi staðið ógn af Annþóri og Berki, þeir hafi verið ógnandi og hinn látni hræddur við þá í aðdraganda málsins. Einn erlendu sérfræðinganna, David J. Cooke, prófessor í klíniskri réttarsálfræði, gagnrýnir hins vegar mjög niðurstöður íslensku prófessoranna og kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að aðferðarfræði þeirra uppfylli ekki þær gæðakröfur sem almennt eru gerðar í réttarsálfræði. Í skýrslu sinni gerir hann auk þess athugasemdir við hlutdrægni sálfræðinganna sem hafi þekkt til ákærðu þegar þeir komust að niðurstöðum sínum.
Tengdar fréttir Ekkert þokast í manndrápsmáli síðan í vor Annþór og Börkur voru vistaðir á öryggisgangi á Litla-Hrauni eftir að málið kom upp, aðskildir frá öðrum föngum. Þeir eru nú á almennum gangi en þó ekki á sama gangi. 19. september 2014 07:00 Segir áverkana ekki tilkomna eftir högg Niðurstöður yfirmatsmanna á atburðarás og áverkum manns sem lést á Litla-Hrauni eru á skjön við niðurstöður íslenskra sérfræðinga. Réttarmeinafræðingur segir líklegra að áverkar séu tilkomnir eftir endurlífgunartilraunir en ofbeldi. 11. apríl 2015 09:00 Fá sérfræðinga frá Noregi og Svíþjóð Tveir sérfræðingar verða á föstudag fengnir til að fara yfir mat á krufningarskýrslu í máli Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar sem gefið er að sök hafa valdið dauða samfanga síns á Litla-Hrauni. 10. febrúar 2015 07:00 Mál gegn Annþóri og Berki aftur komið á hreyfingu Yfirmatsmenn hafa verið dómkvaddir. 13. febrúar 2015 16:18 Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fleiri fréttir Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Sjá meira
Ekkert þokast í manndrápsmáli síðan í vor Annþór og Börkur voru vistaðir á öryggisgangi á Litla-Hrauni eftir að málið kom upp, aðskildir frá öðrum föngum. Þeir eru nú á almennum gangi en þó ekki á sama gangi. 19. september 2014 07:00
Segir áverkana ekki tilkomna eftir högg Niðurstöður yfirmatsmanna á atburðarás og áverkum manns sem lést á Litla-Hrauni eru á skjön við niðurstöður íslenskra sérfræðinga. Réttarmeinafræðingur segir líklegra að áverkar séu tilkomnir eftir endurlífgunartilraunir en ofbeldi. 11. apríl 2015 09:00
Fá sérfræðinga frá Noregi og Svíþjóð Tveir sérfræðingar verða á föstudag fengnir til að fara yfir mat á krufningarskýrslu í máli Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar sem gefið er að sök hafa valdið dauða samfanga síns á Litla-Hrauni. 10. febrúar 2015 07:00
Mál gegn Annþóri og Berki aftur komið á hreyfingu Yfirmatsmenn hafa verið dómkvaddir. 13. febrúar 2015 16:18