Hjólum fyrir hundruð þúsunda stolið úr læstri hjólageymslu Jakob Bjarnar skrifar 24. júlí 2015 14:36 Guðbjörg og Lilja á Gay Pride árið 2012. Hjólum þeirra var stolið og er það verulegt tjón sem meta má á umg 200 þúsund krónur. Ólafur Kr. Ólafsson
Óprúttnir aðilar gerðu sér lítið fyrir, fóru inn í læsta hjólageymslu og hreinsuðu þar út; stálu í það minnsta tíu hjólum. Þetta var aðfararnótt sunnudags í fjölbýlishúsi í 104 Reykjavík, en 40 íbúðir deila þar geymslunni. Lögreglan hefur reynt að hafa hendur í hári þjófanna með að fylgjast með sölu á þýfi á bland.is. Lilja Torfadóttir og kona hennar Guðbjörg Árnadóttir eru meðal fórnarlamba þjófanna. „Svo virðist sem viðkomandi hafi komist yfir lykla því það eru engin ummerki um innbrot. Og það varð enginn var við neitt,“ segir Lilja. Málið var kært en Lilja segist ekkert hafa heyrt frá lögreglunni en hún viti þó að málið sé í rannsókn. En, svo virðist sem einhver hafi hreinlega komið á sendiferðabíl og borið hjólin út.Mynd af einu hjólanna sem var stolið þegar hreinsað var út úr reiðhjólageymslu fjölbýlishúss aðfararnótt sunnudags.Hjól þeirra Lilju og Guðbjargar, hjálma og búnað, má meta á um 200 þúsund krónur; nýleg hjól og lítt notuð. Lilja furðar sig á því hversu algengt þetta er að hjólum sé stolið. Hún hefur oft heyrt sögur þess efnis að hjólum sé stolið og þau hverfi í gáma skipa sem eru að sigla. Og svo eru dæmi þess að reynt sé að selja þýfi á bland.is; þar sem eitt og annað er til sölu. Lilja segir að einhver hjólanna, þó ekki þeirra Guðbjargar, hafi dúkkað þar upp. „Ég veit að löggan hafði samband við stelpu, nágranna minn og bað hana um að mæla sér mót við þann sem er á Bland að selja hjólið hennar. Hún mun hafa gert það og var að fá hjólið sitt áðan. Þannig að svo virðist sem búið sé að hafa hendur í hári þeirra sem stálu hjólunum,“ segir Lilja.
Tengdar fréttir Andrés Jónsson sá stolið hjól sitt auglýst á Bland Almannatengillinn mælti sér mót við þjófinn, ekki til að borga fyrir sitt eigið hjól, heldur til að sækja það. 5. júní 2015 11:47 Mótorkrosshjóli stolið af níu ára dreng: Faðirinn svelti sig til að eiga fyrir hjólinu Níu ára drengur í öngum sínum eftir að mótorkross hjóli hans var stolið um helgina. 10. september 2014 13:00 Illugi skrifar reiðhjólaþjófi: „Dóttir mín á þetta hjól, ekki þú“ Hjóli Veru Illugadóttur var stolið í miðbæ Reykjavíkur á dögunum. 14. júlí 2015 14:29 Hjólinu stolið daginn fyrir WOW Cyclothon: „Ég held að þjófurinn hafi verið að elta hópinn“ „Hjólinu var stolið hér fyrir utan höfuðstöðvar WOW,“ segir Egill Reynisson, sem ætlar sér að taka þátt í WOW Cyclothon hjólreiðakeppninni. Egill er starfsmaður hjá flugfélaginu og keppir því fyrir lið WOW. 23. júní 2015 15:00 Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Andrés Jónsson sá stolið hjól sitt auglýst á Bland Almannatengillinn mælti sér mót við þjófinn, ekki til að borga fyrir sitt eigið hjól, heldur til að sækja það. 5. júní 2015 11:47
Mótorkrosshjóli stolið af níu ára dreng: Faðirinn svelti sig til að eiga fyrir hjólinu Níu ára drengur í öngum sínum eftir að mótorkross hjóli hans var stolið um helgina. 10. september 2014 13:00
Illugi skrifar reiðhjólaþjófi: „Dóttir mín á þetta hjól, ekki þú“ Hjóli Veru Illugadóttur var stolið í miðbæ Reykjavíkur á dögunum. 14. júlí 2015 14:29
Hjólinu stolið daginn fyrir WOW Cyclothon: „Ég held að þjófurinn hafi verið að elta hópinn“ „Hjólinu var stolið hér fyrir utan höfuðstöðvar WOW,“ segir Egill Reynisson, sem ætlar sér að taka þátt í WOW Cyclothon hjólreiðakeppninni. Egill er starfsmaður hjá flugfélaginu og keppir því fyrir lið WOW. 23. júní 2015 15:00