Indland verður orðið fjölmennasta ríki heims þegar árið 2022 Atli Ísleifsson skrifar 29. júlí 2015 19:08 1.380 milljónir manna búi nú í Kína, en 1.310 milljónir í Indlandi. Vísir/Getty
Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna áætla að Indland verði orðið fjölmennasta ríki heims þegar árið 2022. Spá Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2013 gerði ráð fyrir að Indland tæki fram úr Kína árið 2028. Sameinuðu þjóðirnar birtu nýja skýrslu fyrr í dag þar sem spáð er fyrir um mannfjöldaþróun í heiminum næstu áratugina. Í skýrslunni segir að 1.380 milljónir manna búi nú í Kína, en 1.310 milljónir í Indlandi. Eftir sjö ár er hins vegar búist við að mannfjöldinn verði kominn upp í 1.400 milljónir manna í báðum ríkjunum. Næstu áratugina er svo búist við að mannfjöldinn í Indlandi muni aukast enn frekar - ná 1.500 milljónum árið 2030 og 1.700 milljónir 2050. Á móti er talið að mannfjöldinn í Kína haldast nokkuð stöðugur á næstunni og svo muni fólki fækka á fjórða áratug þessarar aldar. Um 7,3 milljarðar manna lifa nú á jörðinni og er búist við að sá fjöldi verði kominn í 9,7 milljarða árið 2050. Búist er við að hlutfallslega verði mesta fjölgunin í Afríku og fjölmennustu ríkjum heims. Helmingur aukningarinnar fram til ársins 2050 er talinn munu verða í níu ríkjum – Indlandi, Nígeríu, Pakistan, Lýðveldinu Kongó, Eþíópíu, Tansaníu, Bandaríkjunum, Indónesíu og Úganda. Í frétt New York Times segir að búist sé við að fólki muni fækka í 48 af ríkjum heims – fyrst og fremst ríkjum í Evrópu. Þannig reikna sérfræðingarnir með að fólki í fjölda ríkja muni fækka um meira en 1,5 prósent fram til ársins 2050 – þar á meðal Bosníu, Búlgaríu, Króatíu, Ungverjalandi, Japan, Lettlandi, Litháen, Moldóvu, Rúmeníu, Serbíu og Úkraínu.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Sjá meira