Tæp fimmtíu ár frá síðustu þrennu í úrslitaleik HM Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. júlí 2015 23:27 Lloyd og félagar fagna í Vancouver. Vísir/AFP
Sparkspekingar um allan heim trúa ekki sínum eigin augum. Þegar fimm mínútur voru liðnar af úrslitaleik Bandaríkjanna og Japan á HM í Kanada voru þær bandarísku komnar í 2-0. Eftir korter var staðan orðin 4-0. Fyrirliði bandaríska liðsins, Carli Lloyd, er búin að skora þrennu en fjórða markið skoraði hún með skoti frá miðju. Lloyd er komin með sex mörk á mótinu eins og Celia Sasic hjá Þýskalandi. Það ætti ekki að koma neinum á óvart ef Lloyd bætir við marki og tryggi sér markakóngstitilinn. Lloyd er fyrsti leikmaðurinn í sögu HM kvenna til að skora þrennu í úrslitaleik HM kvenna en fyrst var keppt í Kína árið 1991. Ekki hefur verið skoruð þrenna í úrslitaleik HM síðan Geoff Hurst skoraði þrennu fyrir England gegn Vestur-Þýskalandi á Wembley 1966 eða fyrir 49 árum. Enn er reyndar deilt um hvort boltinn hafi farið yfir línuna í einu marka Hurst. Japan hefur ekki áður lent undir á mótinu, hafði aðeins fengið á sig þrjú mörk í öllum leikjunum til þessa og er leikur liðsins í molum þegar þetta er skrifað. Bandaríkin hafa aðeins fengið á sig eitt mark á öllu mótinu og nákvæmlega engar líkur á því að Japanir nái að snúa við blaðinu. Bandaríkin höfðu fyrir úrslitaleikinn í dag skorað samtals fjögur mörk í þremur úrslitaleikjum sem liðið hefur spilað. Lið hafði ekki skorað fleiri en tvö mörk í úrslitaleik fyrr en í Vancouver í dag.Uppfært klukkan 23:33 Yuki Ogimi minnkaði muninn fyrir Japani eftir um hálftíma leik. Staðan er 4-1.Uppfært klukkan 00:36 Staðan er 5-2 þegar tíu mínútur lifa leiks.
Fótbolti Mest lesið Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fótbolti Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa“ Golf „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fleiri fréttir Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Sjá meira