Birkir orðinn leikmaður Basel Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. júlí 2015 07:51 Birkir við undirritun samningsins. mynd/facebook-síða basel
Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason er genginn í raðir svissneska liðsins Basel frá Pescara á Ítalíu. Frá þessu var greint á heimasíðu Basel í morgun. Birkir, sem er 27 ára, skrifaði undir þriggja ára samning við Basel sem hefur unnið svissnesku deildina sex síðustu ár. Um tíma leit allt út fyrir að Birkir myndi fara til Torino á Ítalíu en svo kom Basel inn í myndina. Birkir var einnig orðaður við enska B-deildarliðið Leeds United.Sjá einnig: Birkir fær aðvörun frá forseta Pescara Birkir, sem hefur leikið 38 A-landsleiki, átti flott tímabil með Pescara sem var hársbreidd frá því að komast upp í ítölsku úrvalsdeildina í vor. Birkir skoraði 12 mörk í 39 deildarleikjum með Pescara í vetur. Basel er sem áður sagði ríkjandi meistari í Sviss auk þess sem liðið hefur verið fastagestur í Meistaradeild Evrópu síðustu ár. Svissneska liðið komst upp úr riðli sínum í Meistaradeildinni í vetur en tapaði fyrir Porto í 16-liða úrslitunum, samanlagt 5-1. Það verður nýr maður í brúnni hjá Basel á næsta tímabili en Svisslendingurinn Urs Fischer er tekinn við sem knattspyrnustjóri liðsins af Portúgalanum Paolo Sousa.
Fótbolti Mest lesið Ósáttur Lárus Orri: „Sýnum smá ástríðu líka“ Fótbolti Júlíus Orri semur við Tindastól Körfubolti Arftaki hins titlaóða Carsons fundinn Enski boltinn „Barnaskapur sem á ekki alveg við“ Fótbolti Senegal lagði England í Nottingham Fótbolti Uppgjörið: Norður-Írland - Ísland 1-0 | Bragðdauft í Belfast Fótbolti Hollendingar skoruðu átta Fótbolti Viðar Símonarson látinn Handbolti „Ég hata að tapa“ Fótbolti „Heimurinn er ekkert að farast þó við höfum tapað“ Fótbolti Fleiri fréttir Arftaki hins titlaóða Carsons fundinn Ósáttur Lárus Orri: „Sýnum smá ástríðu líka“ „Barnaskapur sem á ekki alveg við“ Senegal lagði England í Nottingham „Ég hata að tapa“ Hollendingar skoruðu átta „Heimurinn er ekkert að farast þó við höfum tapað“ Man City staðfestir kaupin á Cherki Forest vill niðurstöðu í mál Palace Uppgjörið: Norður-Írland - Ísland 1-0 | Bragðdauft í Belfast Byrjunarlið Íslands: Arnar gerir fimm breytingar Man City ræður annan úr teymi Klopp hjá Liverpool Chelsea vill Gittens áður en glugginn lokar Aftur Bellingham í Dortmund eftir metsölu „Eftir að Real Madrid hringdi hugsaði ég ekki um neitt annað lið“ Jonny Evans heiðraður fyrir landsleik kvöldsins Orri berst við fyrirliðann um stöðu: „Góðir vinir og reynum að hjálpast að“ Þjálfari Þóris rekinn þrátt fyrir að bjarga liðinu Gerðu vúdúdúkku vegna reiði í garð Ísaks Allt klárt og Frank verður næsti stjóri Tottenham „Við erum fastir í einhverri dýflissu“ Þvert nei við umsókn Grænlands Segir ástandið í Los Angeles „ekki eðlilegt“ Mæta örmagna til leiks á HM félagsliða eftir langt og strembið tímabil „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ ÍR og Njarðvík áfram taplaus Næstum því ótrúleg endurkoma Wales í Belgíu „Þróttarar gefa ekkert eftir, er þeim ekki alvara í þessu stríði?“ Aït-Nouri fyrstur inn um dyrnar hjá Man City Arnar rifjaði upp góða tíma með norður-írskum félögum Sjá meira