Fyrrum þingflokksformaður Framsóknar segir Sigmund „hrokagikk valdsins“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 30. júní 2015 11:51 Kristinn H. Gunnarsson segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hafa egnt fjölmarga þjóðfélagshópa til reiði með hrokafullum ummælum.
Kristinn H. Gunnarsson, fyrrum alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn og formaður þingflokksins, segir Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og samflokksmann sinn vera í fullkominni afneitun á þeim veruleika sem almenningur í landinu er að mótmæla og forsætisráðherra á mikinn þátt í búa til. Þá segir hann forsætisráðherra og aðra meðlimi ríkisstjórnarinnar þjást af skynjunarofi - „í hátimbruðum valdastólum sínum sem eru fluttir inn í sinn Babýlonsturn.” Kristinn, sem stundum er nefndur Kiddi sleggja, lætur ummælin falla í pistli á heimasíðu sinni þar sem hann gerir mótmælin sem viðhöfð voru við hátíðahöldin 17 júní að umfjöllunarefni sínu. Á þriðja þúsund manns mótmæltu þar hástöfum undir hátíðarræðu forsætisráðherra eins og frægt er orðið og segir Kristinn að málflutningur Sigmundar á þjóðhátíðardeginum hafi verið „afar óskynsamur.“ Forsætisráðherrann hafi látið eins og honum væri alls hendist ókunnugt um ólguna í samfélaginu og undirrót þeirrar reiði sem braust fram á Austurvelli. „Það þarf mikið til þess að prúðasti almenningur í Evrópu grípi til hávaðasamra mótmæla á sjálfan þjóðhátíðardaginn við athöfn sem annars er landsmönnum kær helgistund. Þegar svo er komið er ekki allt í lagi og ráðamenn þjóðarinnar komnir úr sambandi við fjölmenna hópa þjóðfélagsins,” segir Kristinn og bætir við að dagljóst sé að mótmælin eiga mikinn stuðning meðal landsmanna. Á þriðja þúsund manns safnaðist saman á Austurvelli og mótmælti undir ræðu forsætisráðherraVísirForsætisráðherra í fullkominni afneitun Þingflokksformaðurinn fyrrverandi sakar Sigmund Davíð um að ala á sundrungu í samfélaginu og að hafa tamið sér „stóryrði og hnýfilyrði í garð þeirra sem ekki deila hans sýn á menn og málefni.” „Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og ríkisstjórn hans hefur á undanförnum mánuðum egnt fjölmarga þjóðfélagshópa til reiði og hellt olíu svo á þann eld með hrokafullum ummælum,“ segir Kristinn og vísar til ummæla forsætisráðherrans um hið litla fylgi ríkisstjórnarinnar gæti „að einhverju leyti skýrist kannski á þessu rofi milli raunveruleika og skynjunar eða umfjöllunar,” sem Sigmundur lét hafa eftir sér í samtali við Eyjuna. „Ræða forsætisráðherrans á Austurvelli fyrir fáum dögum er kannski skýrasta dæmið um rof milli skynjunar og veruleika sem er til staðar. Það er forsætisráðherrann sjálfur sem er í fullkominni afneitun á þeim veruleika sem almenningur er að mótmæla og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á mikinn þátt í að hafa búið til. Það er ekki almenningur sem þjáist af skynjunarrofinu heldur eru það ráðamennirnir við ríkisstjórnarborðið í hátimbruðum valdastólum sínum sem eru fluttir inn í sinn Babýlonsturn,” segir Kristinn. “Undir kraumar reiði öryrkja og eldri borgara yfir kjörum sínum og almenn reiði vegna þjónkunar við fámennan hóp auðmanna með lækkun skatta og fyrirhugaðri gjöf á verðmætum makrílstofni. Það er margt sem skýrir mótmælin við Austurvöll og flest af því er ríkisstjórnin meira og minna ábyrgt fyrir. Það er mikið rof á skynjun forsætisráðherra að sjá það ekki.”
Tengdar fréttir Mótmæltu vanhæfri ríkisstjórn og ástandi heilbrigðiskerfisins Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segist hafa skilning á mótmælunum á Austurvelli í dag. 17. júní 2015 19:46 Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Systir Haraldar er látin Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Sjá meira
Mótmæltu vanhæfri ríkisstjórn og ástandi heilbrigðiskerfisins Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segist hafa skilning á mótmælunum á Austurvelli í dag. 17. júní 2015 19:46