Innlent

Enn óljóst hvenær Alþingi lýkur störfum

Heimir Már Pétursson skrifar
Ekki sér fyrir endann á þingstörfum vegna ósamkomulags um hvaða málum eigi að ljúka áður en þing fer í sumarleyfi en þrjátíu mál eru á dagskrá Alþingis í dag. Þingflokksformaður Vinstri grænna segir met hafa verið slegið í lengd þingstarfa inn í sumarið.

Tæpur mánuður er liðinn frá því Alþingi átti að ljúka störfum og starfsáætlun þess rann sitt skeið. Svandís Svavarsdóttir þingflokksformaður Vinstri grænna segir ekki sjá fyrir endann á þingstörfum í sumar.

„Við erum komin núna inn í fjórðu viku framyfir starfsáætlun þingsins. Það virðist sem stjórnarflokkunum sé kki í lófa lagið að leggja fram neina raunhæfa áætlun um þinglok. Ég held að við förum að nálgast met hvað varðar ráðleysi í þeim efnum. Í raun og veru virðist þinginu vera stjórnað, eða ekki stjórnað, af ríkisstjórninni. Af forsætisráðherra fyrst og fremst sem er nú eins og kunnug er ekkert lagið að stýra hlutum farsællega,“ segir Svandís.

Svandís segir að þótt þing sitji stundum inn í sumarið á kosningaári sé ákaflega sjaldgæft að það starfi svo lengi að loknu vorþingi og það hafi raunar ekki gerst í marga áratugi. Til að ljúka megi þingstörfum þurfi stjórnarflokkarnir að greina frá því vilja sínum. En 30 mál eru á dagskrá þingfundar í dag.

„Og að sumu leyti virðist manni það vera þannig að ekki einu sinni stjórnarflokkarnir sjálfir séu sammála um hvað sé mikilvægt og hvað ekki. Við erum augljóslega komin svo langt fram yfir allan eðlilegan tíma að stjórnarflokkarnir verða að fara að skera það verulega niður. Því ef við ætlum að ræða öll mál sem eru inni í nefndum og svo framvegis og líka mál sem eru í ágreiningu, þá dugar okkur ekki einu sinni sumarið til,“ segir Svandís.

Henni virðist málið einkum vefjast fyrir Framsóknarmönnum en Sjálfstæðismönnum hafi gengið betur að skigreina sín forgangsmál.

Stóru deilumálin eru breytingatillögur við annars vegar makrílfrumvarp sjávarútvegsráðherra og við þingsályktunartillögu umhverfisráðherra um virkjanakosti. Stjórnarandstaðan vill fresta makrílmálinu í heild sinni til haustsins og að eingöngu verði afgreiddur einn virkjanakostur sem var í upprunalegri þingsályktunartillögu umhverfisráðherra.

Heldur þú að það gæti jafnvel farið þannig að það grói saman með yfirstandandi þingi og haustþinginu?

„Það væri þá enn eitt metið sem þessi ríkisstjórn setur,“ segir Svandís Svavarsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×