Áfangaheimili lokað: Vonar að enginn lendi á götunni Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 23. júní 2015 20:55
Áfangaheimili fyrir fólk með geðrofssjúkdóma verður lokað í næstu viku vegna fjárhagsörðugleika og ekki er búið að finna önnur búsetuúrræði fyrir alla íbúa hússins. Húsið, sem var byggt fyrir söfnunarfé frá Kiwanisfélaginu, verður annað hvort selt eða leigt út. Undanfarin ár hefur verið rekið í húsinu, sem stendur við Álfaland 15 í Fossvoginum, heimili fyrir sjö einstaklinga og einn til viðbótar í séríbúð. Dvölin er hugsuð sem endurhæfing til að búa þá undir sjálfstæða búsetu. Formaður Geðverndarfélags Íslands, Gunnlaug Thorlacius, ber við fjárskorti og segir styrk frá Velferðarráðuneytinu ekki hafa dugað til og viðræður um samstarf við Reykjavíkurborg ekki hafa borið árangur. Mikill skortur er á búsetuúrræðum og húsnæði fyrir fólk með geðfötlun. María Einisdóttir, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans, greindi frá því í viðtali við Fréttablaðið nýverið að sá sem lengst hefur beðið á geðdeild eftir búsetuúrræði hafi beðið í tvö ár. Það er ekki búið að finna búsetu fyrir alla íbúa Álfalands og skammur tími til stefnu því skellt verður í lás 30.júní. „Nei því miður, það er ekki búið að finna úrræði fyrir alla, en það er svona í pípunum og við erum bjartsýn á að það hafist,“ segir Gunnlaug og segist vona að enginn íbúa lendi á götunni.Húsið keypt fyrir söfnunarfé Húsið er eign Geðverndarfélags Íslands en það var gefið félaginu af Kiwanis-hreyfingunni sem byggði það fyrir söfnunarfé á 9. áratugnum svo þar mætti hafa heimili fyrir geðfatlaða. Spurt er, má selja eða leigja út húsið í öðrum tilgangi? „Já, húsið er byggt fyrir gjafafé sem fékkst fyrir sölu K-lykilsins á sínum tíma, við létum athuga það í öllum pappírum hjá okkur og við fengum lögformlegt álit á því og það eru ekki kvaðir á gjöfinni sem slíkri.“ Ekki er búið að taka ákvörðun um hvort húsið verður leigt út eða selt. „Það er ekki búið að taka ákvörðun um það núna. Íbúum var öllum sagt upp með mjög góðum fyrirvara, mig minnir að það hafi verið sjö eða átta mánaða fyrirvari á uppsögnum. Svo munum við taka ákvörðun í framhaldinu. Það er ljóst að við þurfum að standa vörð um hagsmuni félagsins. Við höfum þurft að ganga svolítið á eignir til að reka þetta. Við þurfum að gæta líka hagsmuna greiðenda félaga Geðverndarfélags Íslands.“
Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Innlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Erlent Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Innlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Fleiri fréttir Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Sjá meira