Býður upp á nýjan alþjóðavöll 20 km frá miðborg Reykjavíkur Kristján Már Unnarsson skrifar 25. júní 2015 19:21
Flugvöllur í Hvassahrauni er sá sem helst kemur til greina í stað Reykjavíkurflugvallar. Þetta er meginniðurstaða Rögnunefndar en Hvassahraunsvöllur hefði möguleika á að þróast upp í að verða millilandaflugvöllur, aðeins tuttugu kílómetrum frá miðborg Reykjavíkur. Er eitthvert annað flugvallarstæði en Vatnsmýri sem kemur til greina sem innanlandsflugvöllur? Í fyrsta sæti varð Hvassahraun. Flugvöllur þar er þó hugsaður til að geta orðið meira en bara innanlandsvöllur.Ragna Árnadóttir, formaður nefndar sem kannaði önnur flugvallarstæði en Vatnsmýri.Stöð 2/Arnar Halldórsson.„Það sem við horfðum til, af því að við fengum það verkefni að athuga hvort það væri einhver flugvallarkostur sem væri með þróunarmöguleika, það er að segja með lengri flugbrautir og stærra athafnasvæði, þá komumst við að þeirri niðurstöðu að þá er Hvassahraun fýsilegasti kosturinn,“ segir Ragna Árnadóttir, formaður nefndar um möguleg flugvallarstæði. Fimm kostir voru skoðaðir, sem flestir kosta á bilinu 20 til 25 milljarða króna. Bessastaðanes er náttúruverndarsvæði og hefði takmarkaða þróunarmöguleika. Á Hólmsheiði eru ókyrrð og hvassviðri og Esjan hamlar aðflugi, flugvöllur á Lönguskerjum yrði mjög dýr og þýddi mikið umhverfisrask, Vatnsmýrarvöllur í breyttri mynd var skoðaður í nokkrum útfærslum, sem allar kosta álíka og nýr flugvöllur, Hvassahraunsvöllur myndi þýða rask á hrauni en athygli vekur að veðurfar þar fær jákvæða umsögn, vindhraði svipaður og í Vatnsmýri og tíðni mikillar ókyrrðar er ekki talin vandamál. Þá nefndi Ragna á blaðamannafundi um skýrsluna í dag að leggja þyrfti á annað hundrað milljarða króna í endurbætur á Keflavíkurflugvelli. Það vekur þá spurningu hvort nær væri að setja peningana í nýjan alþjóðaflugvöll. En má túlka niðurstöðuna svo að aðrir kostir en Hvassahraun séu nú úr myndinni? „Þetta er allavega fyrsti kostur,“ svarar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og nefndarmaður. „Og mér finnst geysilega mikilvægt að það er samstaða um hann og gögnin liggja núna öll fyrir á samanburðarhæfan hátt. Ég held að það segi sitt að það er samstaða um það að Hvassahraunið er fyrsti kostur,“ segir borgarstjóri.Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.Stöð 2/Arnar Halldórsson.Rögnunefndin slær ekki á deilurnar um Reykjavíkurflugvöll, sendir fremur þau skilaboð: Gerið vopnahlé meðan Hvassahraunskosturinn er skoðaður til hlýtar. „Vatnsmýrin í núverandi mynd var ekki meðal verkefna nefndarinnar. En það segir sig sjálft að það er ekki hægt að fjalla um þessi flugvallarmál áfram án þess að það verði einhverskonar sátt um rekstraröryggi Vatnsmýrarinnar á meðan. Það er ekki hægt að vinna áfram að þessum málum meðan allt logar í illdeilum. Þetta er lykilatriði,“ segir Ragna. Borgarstjóri sér fram á viðræður í sumar við ráðherra flugmála og fleiri og kveðst tilbúinn að setjast niður með ráðuneytinu og hagsmunaaðilum og búa til einhverskonar tíma- og framkvæmdaáætlun, ef sátt er um þessar tillögur. „Ég held að við séum kannski að opna á ákveðið tækifæri sem við höfum ekki séð áður, að ráða þessum málum til lykta í sameiningu þannig að sátt geti skapast til langrar framtíðar,“ segir Dagur.
Tengdar fréttir Hvassahraun skoðað undir alþjóðaflugvöll Nýr flugvöllur í Hvassahrauni, sem myndi þjóna bæði millilanda- og innanlandsflugi, er nú til ítarlegrar skoðunar á vegum Rögnunefndar. 11. apríl 2015 19:45 Skýrslan breytir engu um baráttuna fyrir flugvelli í Vatnsmýri Sveinbjörg Birna segist ætla að standa keikrétt gegn skammtímagróðasjónarmiðum sem snúa að uppbyggingu á svæðinu. 25. júní 2015 16:25 „Óráð væri að leggja flugvöll þarna suður frá“ Ómar segir flugstæðið hafa verið skoðað fyrir 55 árum. 25. júní 2015 17:56 Rögnunefnd hefur lokið störfum: Lestu skýrsluna í heild sinni Hvassahraun var talið besti staðurinn undir nýjan innanlandsflugvöll. 25. júní 2015 14:43 Sjúkraflutningar gætu lengst um allt að tólf mínútur Af þeim flugvallarkostum sem fjallað er um í skýrslu Rögnunefndarinnar svokölluðu er Hvassahraun lengst frá Landspítalanum við Hringbraut sem og í Fossvogi. 25. júní 2015 16:36 Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Innlent Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Veður Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Fleiri fréttir Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Sjá meira
Hvassahraun skoðað undir alþjóðaflugvöll Nýr flugvöllur í Hvassahrauni, sem myndi þjóna bæði millilanda- og innanlandsflugi, er nú til ítarlegrar skoðunar á vegum Rögnunefndar. 11. apríl 2015 19:45
Skýrslan breytir engu um baráttuna fyrir flugvelli í Vatnsmýri Sveinbjörg Birna segist ætla að standa keikrétt gegn skammtímagróðasjónarmiðum sem snúa að uppbyggingu á svæðinu. 25. júní 2015 16:25
„Óráð væri að leggja flugvöll þarna suður frá“ Ómar segir flugstæðið hafa verið skoðað fyrir 55 árum. 25. júní 2015 17:56
Rögnunefnd hefur lokið störfum: Lestu skýrsluna í heild sinni Hvassahraun var talið besti staðurinn undir nýjan innanlandsflugvöll. 25. júní 2015 14:43
Sjúkraflutningar gætu lengst um allt að tólf mínútur Af þeim flugvallarkostum sem fjallað er um í skýrslu Rögnunefndarinnar svokölluðu er Hvassahraun lengst frá Landspítalanum við Hringbraut sem og í Fossvogi. 25. júní 2015 16:36