Innlent

Hildur útskýrir betur ummælin um sjómenn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Færsla Hildar hefur vakið afar mikla athygli og skapast töluverð umræða. Sitt sýnist hverjum.
Færsla Hildar hefur vakið afar mikla athygli og skapast töluverð umræða. Sitt sýnist hverjum. Vísir
Hildur Lilliendahl segir það alls ekki hafar verið ætlun sína að alhæfa um stétt sjómanna frekar en nokkra aðra stétt. Ummæli sem hún lét falla á Facebook, en tók síðar út, hafa vakið mikla athygli og töluverða reiði.

Hildur sagði í stuttu samtali við Vísi á mánudag hafa fjarlægt ummæli sín um leið og hún áttaði sig á því hve margir misskildu hana. Hún birti í gær á Twitter athugasemd sem hún skrifaði í kjölfar mikillar umræðu vegna ummælanna sem fór í hönd í Facebook-hópnum Beauty tips.

Sjá einnig: „Til voru menn sem hældu sér af því að hafa „tuskað til kjeddlinguna“ í inniverunni“

Ummælin má sjá í heild sinni hér að neðan en óhætt er að segja að skiptar skoðanir hafi verið á þeim. Fjölmargir hafa gagnrýnt ummælin harðlega og sömuleiðis margir komið Hildi til varnar.

„…það sem ég átti við var flókið og fræðilegt mál um skaðlegar karlmennskuímyndir og allar konurnar sem stóðu einar undri því (þetta var nota bene í þátíð) að reka heimilið einar svo karlarnir gætu stundað sjó. Og uppskáru sumar hverjar gegndarlaust fyllirí og ofbeldi þegar þeir voru í landi,“ segir Hildur.

Hún segist hafa átt við að hættulegt væri að upphefja karlmannlegar hetjuímyndir.

„…. þær viðhalda skökkum valdahlutföllum og það er mikilvægt að við minnumst líka fórnanna sem konurnar færðu þegar við upphefjum líf og störf sjómanna fortíðarinnar.“

Hún segir skrýtið að þurfa að taka fram að hún hafi ekki ætlað að særa nokkurn mann, hún elski karla jafnt sem konur og og sérstaklega allar þær hugrökku sem stigið hafa fram með sögur nýlega í tilefni vitundavakninga á borð við #þöggun og #6dagsleikinn.

Svar Hildar sem hún birti á Twitter í gær má sjá hér að neðan.

Hæ elskur. Statusinn þarna er vissulega minn en ekkert annað á þessari mynd. Ég tók hann út þegar ég áttaði mig á því að Vísir hafði tekið umræður úr Beauty tips um reynslu mína af kvensjúkdómalækni og birt grein um þær.

Ég hafði ekki orku í að takast á við hvort tveggja og fattaði allt í einu að ég hafði sært fólk og var ekki í aðstöðu til að útskýra hvað ég átti við.

Ég er ekki í góðri aðstöðu til þess núna heldur nema í mjög stuttu máli en það sem ég átti við var flókið og fræðilegt mál um skaðlegar karlmennskuímyndir og allar konurnar sem stóðu einar undri því (þetta var nota bene í þátíð) að reka heimilið einar svo karlarnir gætu stundað sjó. Og uppskáru sumar hverjar gegndarlaust fyllirí og ofbeldi þegar þeir voru í landi.

Ég átti við að það er hættulegt að upphefja karlmannlegar hetjuímyndir, þær viðhalda skökkum valdahlutföllum og það er mikilvægt að við minnumst líka fórnanna sem konurnar færðu þegar við upphefjum líf og störf sjómanna fortíðarinnar.

Mér finnst skrýtið að þurfa að taka það fram að það var að sjálfsögðu aldrei ætlun mín að alhæfa um þessa stétt frekar en nokkra aðra. Og nei, ég hata ekki karla, ég elska þá næstum jafnmikið og ég elska allar hugrökku konurnar sem eru að stíga fram þessa dagana og deila reynslu sinni af ofbeldi til að gera heiminn betri.


Tengdar fréttir

Femínisti segir af sér

„Þeir sem hæst hafa undir hverjum fána, og fara þar fremstir í flokki, þeir skilgreina merkinguna.“

Segir marga misskilja færslu sína um sjómenn

"Hetjur hafsins komu líka í land, duttu í það og lömdu konurnar sínar,“ sagði Hildur Lilliendahl í tilefni sjómannadagsins í gær. "Við skulum ekki gleyma öllum skuggahliðunum á þessari menningu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×