Sögulegir samningar undirritaðir á Patreksfirði Stefán Ó. Jónsson skrifar 12. júní 2015 16:30 MYND/PÁLL VILHJÁLMSON
Samstarfssamningar á milli Héraðssambandsins Hrafna-Flóka (HHF) og sveitarfélaganna Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps annars vegar og HHF og sex af stærstu fyrirtækjunum á sunnanverðum Vestfjörðum hins vegar voru undirritaðir í gær í Fjölval á Patreksfirði. Fyrirtækin sem um ræðir eru Oddi hf Patreksfirði, Þórsberg ehf. Tálknafirði, Landsbankinn Patreksfirði, Arnarlax ehf. Bíldudal, Fjarðalax ehf. og Íslenska Kalkþörungafélagið ehf. Bíldudal. Aðdragandi samninganna er sá að í febrúar árið 2014 var haldinn stefnumótunarfundur að tilstuðlan HHF í samstarfi við Vesturbyggð og Tálknafjarðarhrepp. Á fundinum var staða íþrótta- og æskulýðsmála á svæðinu greind; farið var yfir styrkleika og veikleika, ógnanir og tækifæri. Einnig var farið yfir hvernig væri hægt að bæta stöðuna og að lokum voru niðurstöðurnar dregnar saman og nokkur atriði sett sem forgangsverkefni. Efst á þessum forgangslista var að fá starfsmann, íþróttafulltrúa á sunnanverðum Vestfjörðum, sem ynni bæði fyrir HHF og sveitarfélögin. Páll Vilhjálmsson var ráðinn til verksins. Annað atriði á forgangslistanum var að fá styrk frá bæði sveitafélögum og fyrirtækjum á svæðinu ásamt því að auka jákvæðni á svæðinu gagnvart starfseminni. Samningarnir sem undirritaðir voru í gær eru í samræmi við yfirlýst markmið samstarfsaðila HHF um að styrkja það mikilvæga æskulýðs- og íþróttastarfs sem HHF vinnur að meðal barna og unglinga á sambandssvæði sínu. Á fundinum í gær tóku til máls Lilja Sigurðardóttir, formaður HHF, Valdimar Gunnarsson, Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri í Vesturbyggð, Indriði Indriðason sveitastjóri Tálknafjarðarhrepps og Einar Sveinn Ólafsson framkvæmdastjóri Ískalk. Lýstu þau yfir ánægju sinni með að samstarfssamningar væru undirritaðir og undirstrikuðu mikilvægi þeirra fyrir æskulýðs- og íþróttastarf í héraðinu.MYND/PÁLL VILHJÁLMSSON
Mest lesið Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Erlent Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Innlent „Hann fékk einfaldlega ekki þá hjálp sem hann þurfti á að halda“ Innlent Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Erlent Jóhannes Valgeir er látinn Innlent Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Innlent „Ég hélt að hann yrði forstjóri“ Erlent Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hamraborg Innlent Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Erlent Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Erlent Fleiri fréttir Farmur flugvélaeldsneytis hafi ekki uppfyllt gæðastaðla Þjófur fúlsaði við málverkunum en tók nóg af bjór Veit um fjögur sjálfsvíg tengd gervigreind Enn deilt um sameiningu: „Í raun sé verið að leggja niður Háskólann á Akureyri“ Vill drónavarnir á Íslandi Fannar bæjarstjóri kveður Grindavík Sundlauginni í Reykholti í Bláskógabyggð lokað í eitt ár Lögreglan vilji kæfa glæpahópa í fæðingu Farið yfir Vítisenglamálið og drónavarnir á Íslandi Neysluvatnið óhreint eftir að aurskriða féll Tæplega fimmtíu komast ekki um borð eftir að neyðarrenna var opnuð fyrir mistök Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Myndband: Lögregla stóð vörð vegna Vítisenglaveislu Útgjöld vegna útlendingamála lækka um þriðjung Halla mun funda með Xi Jinping 40 ára afmæli Þorlákskirkju fagnað í Þorlákshöfn Vítisenglar lausir úr haldi og týndir ferðamenn Mikilvægt að sýna Grænlendingum stuðning Allir þrír lausir úr haldi Forseti Íslands ræðir fyrsta árið í embætti Í fangaklefa grunaðir um ólöglega dvöl Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Umfangsmikil lögregluaðgerð í Hamraborg Breiðhyltingar bíði í hálftíma eftir lögreglu: „Verður þetta þá ekki bara búið?“ Mikillar vanþekkingar gæti á þjónustu við trans börn Sungið og sungið í Tungnaréttum Jóhannes Valgeir er látinn ÁTVR græði á misnotkun kerfisins sem bitni á úrvali Jóhannes Óli er nýr forseti Ungs jafnaðarfólks ÁTVR stórgræði á misnotuðu kerfi og lögreglustöð í Breiðholti Sjá meira