Eiffelturninum lokað í sex tíma Atli Ísleifsson skrifar 22. maí 2015 22:36 Um sjö milljónir manna leggja leið sína í Eiffel-turninn á ári hverju. Vísir/AFP
Loka varð Eiffelturninum í París í sex tíma fyrr í dag eftir að starfsfólk lagði niður störf um miðjan dag. Ástæða vinnustöðvunarinnar voru mótmæli starfsmanna turnsins vegna gríðarlegrar aukningar vasaþjófa í og í kringum turninn. Starfsfólk segir gengi smáglæpamanna reglulega hafa í hótunum gegn gestum og starfsfólki og fer það nú fram á að stjórnendur tryggi það að brugðist verði við þeim fjölda vasaþjófa sem beina spjótum sínum gegn ferðamönnum. Fara þeir fram á að lögreglumönnum verði fjölgað við turninn. Talsmaður rekstraraðila turnsins þakkaði Parísarbúum og ferðamönnum fyrir þann skilning sem þeir sýndu vegna lokunarinnar og sagðist þykja miður að verið væri að refsa gestum. Sambærileg lokun varð í Louvre-safninu í borginni í apríl 2013 þegar starfsfólk kvartaði undan því að vasaþjófar hræktu á það, hreyttu ókvæðisorðum í átt að því og réðust jafnvel á það. Lögreglumönnum var fjölgað við Louvre í kjölfar vinnustöðvunarinnar. Um 22 milljónir ferðamanna sóttu Parísarborg heim á síðasta ári, en að jafnaði leggja um sjö milljónir manna leið sína í Eiffel-turninn á ári hverju.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Sjá meira