„Ætlaði að hafa það betra í Noregi en það gekk ekki alveg eftir“ Linda Blöndal skrifar 15. maí 2015 09:23
Íslenskur hjúkrunarfræðingur sem starfaði á sjúkrahúsi í Noregi segir farir sínar ekki sléttar varðandi samskipti við norska ríkið og tryggingakerfið þar í landi. Eftir vinnuslys sé henni neitað um örorkubætur í Noregi þótt hún sé metin á Íslandi með fulla örorku vegna slyssins. Laufey Sigurðardóttir var 38 ára þegar hún slasaðist við störf á sjúkrahúsi í Fredrikstad í Noregi. Óumdeilt var að um vinnuslys hafi verið að ræða en Laufey hafði unnið á spítalanum í sex mánuði. Þetta gerðist árið 2001 og undanfarin fjórtán ár hefur hún barist án árangurs fyrir því að fá viðurkennt í Noregi að hún eigi rétt á örorkubótum vegna vinnuslyssins. Slysið olli alvarlegum taugaskemmdum á öxl og handlegg svo Laufey varð óvinnufær til frambúðar. Sjúkrahúsið greiddi fyrst sjúkradagpeninga en neitaði frekari skoðunum en röntgenmyndum. „Ég fer strax til yfirhjúkkunnar á deildinni minni tveimur dögum seinna, það fer inn í kerfið strax sem vinnulys og er alltaf skráð sem vinnuslys. Ég fékk sjúkradagpeninga þarna strax í veikindunum,“ sagði Laufey í samtali við Stöð 2 í gær.Rannsóknir á Íslandi leiddu alvarleg meiðsl í ljós „Þeir neituðu mér um frekari rannsóknir, ég vildi láta ómskoða og gera eitthvað meira því ég var alltaf að drepast. Þeir sögðu bara: „Nei við vitum hvað þetta er.“ Því ákvað ég sex mánuðum seinna að flytja til Íslands aftur, náttúrulega ein með tvo stráka. Ætlaði að hafa það betra í Noregi en það gekk ekki alveg eftir.“ Þegar heim var komið fór Laufey í þær rannsóknir sem hún hafði ekki fengið í Noregi og komu þá frekari meiðsl í ljós. „Þá var skekktur axlarliður, rifinn liðpoki og ég þurfti að fara í tvær aðgerðir. Taugasérfræðingurinn taldi þetta vera taugaskaða.“ Rannsóknirnar sýndu að lokum að hún væri með fulla örorku. Í Noregi var það ekki viðurkennt.Varar fólk við sem ætlar að flytja til Noregs „Þetta er svo fyndið með þetta samnorræna samstarf. Það virtist ekki vera til staðar. Læknirinn þar dæmir mig til átta prósent örorku, þú verður að vera með 15 prósent til að fá einhver réttindi til örorkubóta í Noregi.“ Laufey var á sínum tíma einstæð móðir og heillaðist af atvinnuauglýsingum frá Noregi um betri laun og vinnutíma. Hún greiddi iðgjöld af laununum sínum til ríkisins en bendir fólki á að norska ríkið sé erfitt við að eiga komi eitthvað upp á. „Ég á engan rétt, hvorki til örorkubóta né ellilífeyris. Þannig að þessi iðgjöld sem maður borgar hirða bara lífeyrissjóðirnir. Þú verður að vinna í minnst þrjú ár til að eiga einhvern rétt á ellilífeyri eða örorkulífeyri.“ Laufey vill vara fólk við sem fer til Noregs í vinnu. „Í fyrsta lagi tékkið reglulega vel á tryggingakerfinu þar og athugið með iðgjöld. Eruð þið að borga iðgjöld sem lífeyrissjóðirnir bara hirða?“
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira